Fréttir

true

Gæti ekki lifað án tónlistar

Að Úlfsstöðum í Hálsasveit í fallegu þrílyftu húsi, sem að falið er bakvið trjágróður frá veginum um sveitina býr Ragnhildur Þorsteinsdóttir. Ragnhildur hefur ætíð haft mikla unun af útiveru og ver dágóðum stundum til ræktunar og garðyrkju, hvort sem það er uppi í skógrækt eða í kringum bæinn. Ásamt því áhugamáli hefur Ragnhildur mikla ástríðu…Lesa meira

true

Þrír Vestlendingar í ofurhlaupi í Svíþjóð

Síðastliðinn laugardag luku þrír Vestlendingar ofurhlaupinu Ultravasan-90, þar sem hlaupin er sama 90 km leiðin í Dölunum í Svíþjóð og gengin er í hinni árlegu Vasagöngu. Kristinn Óskar Sigmundsson í Borgarnesi var fljótastur þremenninganna, en hann lauk hlaupinu á 9:50:57 klst. Vasagönguleiðin hefst við Sälen í Dölunum í Svíþjóð og endar 90 km síðar í…Lesa meira

true

Skemmtilegar svipmyndir frá Dönskum dögum

Bæjarhátíðinn Danskir dagar voru haldnir hátíðlegir í Stykkishólmi í síðustu viku og náði hátíðin hápunkti um helgina. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og ýmislegt við að vera í leik og skemmtun, hvort heldur fyrir börn eða fullorðna eða alla fjölskylduna saman. Í Skessuhorni í dag birtast skemmtilegar svipmyndir Hauks Páls Kristinssonar frá hátíðinni.Lesa meira

true

„Gras er ekki bara gras“

Nú hefur Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands formlega verið færð á Hvanneyri í Borgarfirði en áður voru flestar tilraunir í jarðrækt framkvæmdar á Korpu í Reykjavík og var sú stöð komin til ára sinna, að sögn Hrannars Smára Hilmarssonar, tilraunastjóra. „Hluti af því að við fórum hingað er að hérna er nóg af landi og nú erum…Lesa meira

true

Angelika Kowalska til Snæfells

Pólska körfuknattleikskonan Angelika Kowalska hefur samið við Snæfell um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Frá þessu var greint á heimasíðu félagsins. Angelika er 26 ára og leikur stöðu framherja. Hún á að baki leiki fyrir U16, U18 og U20 ára landslið Póllands, auk þess að hafa leikið nokkur tímabil…Lesa meira

true

Gestirnir komu til baka og stálu sigrinum

Kári varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu í gær, þegar liðið tapaði heima gegn Aftureldingu, 3-2. Káramenn voru sterkari framan af fyrri hálfleik og höfðu tveggja marka forystu eftir 20 mínútna leik. Alexander Már Þorláksson kom Kára yfir á 14. mínútu og Ragnar Már Lárusson bættu öðru marki við sex…Lesa meira

true

Margir sauðfjárbændur skiluðu ekki vorbók á tilsettum tíma

Í samningum bænda og ríkis sem tók gildi 1. janúar 2017 er sett skilyrði fyrir stuðningsgreiðslum til bænda að þeir þurfi að vera þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi og skuli skila fullnægjandi skýrsluhaldi innan tímamarka. Þannig er kveðið á um það í reglum um stuðning við sauðfjárrækt að sauðfjárbændur skuli skila vorbók í Fjárvís eigi síðar en…Lesa meira

true

Snæfell/UDN missti af sæti í umspili

Lið Snæfells/UDN kemst ekki í úrslitakeppni 4. deildar karla í knattspyrnu eftir 4-2 tap á útivelli gegn toppliði Ýmis í lokaumferð A riðils í gærkvöldi. Snæfellingar fengu óskabyrjun þegar Almantas Vansevicius kom þeim yfir strax á 3. mínútu. Hörður magnússon jafnaði metin fyrir Ými á 10. mínútu en Julio Fernandez De La Rosa skoraði á…Lesa meira

true

Fjallað um upphaf skólaársins

Í Skessuhorni sem kom út í dag er púlsinn tekinn á skólum í landshlutanum. Rætt er við forsvarsmenn grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla sem starfræktir eru á Vesturlandi. Samhliða því að grunnskólar hefjast bætast mörg hundruð ungir einstaklingar í umferðina. Ökumenn eru sérstaklega hvattir til að taka tillit til þeirra og aka varlega.Lesa meira

true

Mæðgur mokveiddu makríl

Það eru ekki bara sjómenn sem moka inn makríl þessa dagana, heldur hefur einnig hlaupið á snærið hjá áhugamönnum um bryggjuveiðar. Þessar mæðgur frá Tælandi, búsettar í Hveragerði, voru að veiðum á bryggjunni í Ólafsvík á sunnudaginn og mokveiddu makríl, sandkola og þorsk, svo óhætt er að segja að Breiðafjörðurinn bjóði upp á margar fisktegundir.Lesa meira