Fréttir

true

Gjaldtöku í göngin verður hætt í næsta mánuði

Gert er ráð fyrir að gjaldtöku í Hvalfjarðargöng verði hætt fyrir lok september ef áætlanir Spalar ganga eftir og ekkert óvænt kemur upp. Þá tekur íslenska ríkið yfir rekstur þeirra. Endanleg dagsetning liggur þó ekki fyrir, en hún mun ráðast af umferð og þar með tekjum Spalar af veggjöldum næstu vikurnar. Að sögn Gylfa Þórðarsonar…Lesa meira

true

Kaupfélagið byggir á tveimur stöðum í Borgarnesi

Borgarland ehf., dótturfélag Kaupfélags Borgfirðinga, stendur í stórræðum þessa dagana. Sökkull er kominn úr jörðu þar sem þúsund fermetra þjónustumiðstöð verður byggð við Digranesgötu 4 í Borgarnesi. Í húsinu verða verslanir og veitingahús.  Jafnframt er búið að taka grunn að viðbyggingu við verslunarhús Kaupfélagsins við Egilsholt. Þar verður reist 240 fermetra stækkun. Að sögn Guðsteins…Lesa meira

true

Systur sem störfuðu í áratugi í Bíóhöllinni

Í dag fer fram útför Öldu Jóhannesdóttur á Akranesi. Ísólfur Haraldsson hjá Vinum hallarinnar skrifar minningarorð um systurnar Öldu og Sjöfn sem nú hafa báðar kvatt. „Systurnar Alda & Sjöfn störfuðu í Bíóhöllinni á Akranesi frá opnun 1943, samfelt í 45 ár, af einstakri elsku og samviskusemi eins og eldri Akurnesingar muna svo vel. Sjöfn…Lesa meira

true

Vestlenskir sauðfjárbændur áttu samtal við ráðamenn

Vestlenskir sauðfjárbændur voru með skömmum fyrirvara kallaðir á fund ráðherra landbúnaðarmála í Dalabúð í Búðardal á miðvikudag í liðinni viku. Tilgangur fundarins var að ræða þær tillögur sem hafa borist frá samráðshópi um endurskoðun búvörusamninga. Í upphafi fundar afsakaði Kristján Þór Júlíusson þann skamma fyrirvara sem var á fundinum og sagðist hann vera reiðubúinn að…Lesa meira

true

Fræsa í dag hluta Borgarbrautar í Borgarnesi

Í dag er stefnt að því að fræsa báðar akreinar á efri hluta Borgarbrautar í Borgarnesi, frá Böðvarsgötu að Þórðargötu. Þrengt verður á annarri akreininni í einu. Merkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli klukkan 13:00 og 19:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir…Lesa meira

true

Fyrsta tapið á nýja gervigrasinu

Víkingur Ó. mátti sætta sig við 4-3 dramatískt tap gegn Þrótti R. leik í gærkvöldi. Var þetta fyrsta tap Víkings á nýja gervigrasinu á Ólafsvíkurvelli. Gestirnir byrjuðu betur, sýndu prýðilega sóknartilburði og voru líklegri til að skora í upphafi leiks. Það var því gegn gangi leiksins þegar heimamenn komust yfir á 20. mínútu. Sasha Litwin…Lesa meira

true

Styttist í nýtt kvótaár

Nú styttist óðum í nýtt kvótaár en þá fer atvinnulífið á útgerðarstöðum á fullan snúning. Útgerðarmenn hafa notað sumarið til þess að skvera báta sína fyrir komandi vertíð. Þó eru nokkrir kvótabátar byrjaðir veiðar eftir sumarið og fleiri eru að gera sig klára. Dragnótarbáturinn Leynir SH frá Stykkishólmi er einn þeirra fáu báta sem hafa…Lesa meira

true

Jermelle Fraser verður spilandi þjálfari ÍA

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur samið við Bandaríkjamanninn Jermelle Fraser um að taka að sér að leika með og þjálfa lið Skagamanna í 1. deild karla í körfuknattleik næsta vetur. Greint var frá þessu á Facebook-síðu körfuknattleiksfélagsins síðastliðinn miðvikudag. Jermelle er 31 árs gamall og leikur stöðu bakvarðar. Hann býr yfir töluverðri reynslu bæði sem leikmaður og…Lesa meira

true

Líður að lokum strandveiðanna í sumar

Nú líður að lokum strandveiða þetta sumarið. Hafa gæftir verið versta móti við vesturströndina og segja reyndustu sjómenn að þeir muna ekki eftir annarri eins ótíð að sumri í áratugi. Að undanförnu hefur auk þess verið langt fyrir báta á Snæfellsnesi að sækja aflann og hafa þeir þurft að sigla hátt í 50 mílur til…Lesa meira

true

Jón til aðstoðar Sigmundi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur ráðið nýjan aðstoðarmann. Hann heitir Jón Pétursson, er fæddur 1971 og stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1991. Jón lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1994, var stýrimaður til margra ára og er einn af stofnendum Miðflokksins. Jón er giftur og á einn son og býr í Mosfellsbæ. Þetta kemur…Lesa meira