Fréttir

true

Fimm sigrar í röð hjá ÍA

Skagamenn unnu góðan útisigur á liði ÍR, 2-0, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardag. Var þetta fimmti sigurleikur ÍA í röð. Leikurinn var fremur tíðindalítill fyrst um sinn. Skagamenn voru sterkari og sýndu á köflum prýðilega sóknartilburði. Þeim tókst að skapa sér nokkur ágætis marktækifæri en þau fóru öll forgörðum.…Lesa meira

true

Bókað í byggðarráði um málefni Borgarbrautar 55

Byggðarráð Borgarbyggðar hélt fund í morgun. Þar var undir 12. lið á dagskrá fjallað um lóðarleigusamning og fleira sem tengist samskiptum sveitarfélagsins við fyrirtæki sem reka starfsemi sína við Borgarbrautar 55. Frá því máli var ítarlega greint í síðasta Skessuhorni. Í upphafi fundar var bókað: „Byggðarráð Borgarbyggðar vill koma því á framfæri að það er…Lesa meira

true

Hvalreki á Víkurrifi

Í fjörunni á Víkurrifi, sem liggur á milli Brimlárhöfða og Búlandshöfða á norðanverðu Snæfellsnesi, liggur hvalshræ sem farið er að slá all verulega í. Hræið er frekar ólystugt á að líta og lyktin eftir því fúl. Óljóst er hvenær hvalinn rak á land en ljóst að töluert er síðan hann drapst. Mikið hefur verið um…Lesa meira

true

Byggir á eldra skipulagi

Í Skessuhorni í síðustu viku var fjallað um málefni tveggja fyrirtækja við Borgarbraut 55 í Borgarnesi. Í fréttinni var ranglega farið með að ákvörðun um að endurnýja ekki lóðarleigusamning við fyrirtækin byggði á nýlegu skipulagi. Hið rétta er að deiliskipulag fyrir reitinn var samþykkt af sveitarstjórn Borgarbyggðar í mars 2007 og öðlaðist gildi með auglýsingu…Lesa meira

true

Riðu til hátíðarmessu í tilefni afmælis Glaðs

Í gær var haldið upp á 90 ára afmæli hestamannafélagsins Glaðs í Dölum með því að ríða til hátíðarmessu í Hjarðarholtskirkju. Fengu hestamenn og aðrir kirkjugestir blíðskaparveður. Á vef félagsins og á budardalur.is má sjá drónamyndband sem Sigurður Sigurbjörnsson tók. Messað var í Hjarðarholti þar sem séra Anna Eiríksdóttir sóknarprestur stjórnaði hressilegri og ánægjulegri athöfn,…Lesa meira

true

Kynningarfundur þar sem bændur eru hvattir til nýsköpunarstarfs

Forsvarsaðilar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, í samstarfi við RML, hafa ákveðið að hrinda af stað verkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til nýsköpunarstarfs í sveitum. Leitast verður við að miðla þekkingu og reynslu þeirra sem þegar hafa farið af stað með nýsköpunarverkefni og styðja við hugmyndavinnu og þróun verkefna frá hugmynd til raunveruleika. Átaksverkefni þetta…Lesa meira

true

Búsæld í Breiðabliki er eins árs

Búsæld; markaður með mat og handverk, sem rekinn er í samstarfi við Svæðisgarðinn Snæfellsnes í félagsheimilinu Breiðabliki, fagnar um þessar mundir eins árs afmæli. Búsæld, sem á rætur sínar að rekja til sveitamarkaðar á sunnanverðu Snæfellsnesi, var opnuð fyrir ári síðan sem tilraun til þess að reka heilsársaðstöðu fyrir sölu á mat og handverki beint…Lesa meira

true

Rallað um Vesturland á föstudag og laugardag

Fjórða umferð Íslandsmótsins í rallý, Rallý Reykjavík, verður haldin dagana 23. – 25. ágúst nk. en framkvæmd keppnarinnar er í höndum Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur. Keppnin, sem hefur í gegnum tíðina verið kölluð Alþjóðarallið, er jafnframt sú stærsta og erfiðasta á tímabilinu þar sem eknir verða tæplega 1000 km á þremur dögum, þar af rúmlega 300 km…Lesa meira

true

Sveif 95 ára um háloftin í fallhlíf

Páli Bergþórssyni frá Fljótstungu, fyrrum veðurstofustjóra, er sannarlega ekki fisjað saman. Páll fagnaði fyrr í þessum mánuði 95 ára afmæli og ákvað að gefa sjálfum sér í afmælisgjöf að fara í fallhlífarstökk og kynnast þannig háloftavindunum sem hafa verið hans rannsóknar- og vísindaefni í áratugi. Farið var í lítilli flugvél upp í þriggja kílómetra hæð…Lesa meira