Fréttir

true

Lilja sækist eftir formennsku í SUF

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir í Bakkakoti í Borgarfirði hefur tilkynnt að hún sækist eftir formennsku í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna. Sambandsþing fer fram dagana 31. ágúst til 1. september. Lilja er 22 ára og er annar varaþingmaður flokksins í Norðvesturkjördæmi. Hún er starfsmaður Grunnskóla Borgarfjarðar og er að hefja fjarnám í grunnskólakennarafræðum. „Ég hef notið þess…Lesa meira

true

Ótrúleg dramatík í undanúrslitum Mjólkurbikarsins

Víkingur Ó. úr leik eftir vítaspyrnukeppni Liðsmenn Víkings Ó. máttu játa sig sigraða gegn Breiðabliki í ótrúlegum undanúrslitaleik Mjólkurbikars karla í gærkvöldi. Blikar náðu að jafna á lokasekúndum framlengingar og sigruðu síðan í vítaspyrnukeppni. Frá fyrstu mínútu var ljóst að um hörkuleik yrði að ræða. Breiðablik var mun meira með boltann en Ólafsvíkingar vörðust vel…Lesa meira

true

Tap á móti toppliði Keflavíkur

Skagastelpur í ÍA þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Keflavíkur þegar liðin mættust á Akranesvelli í gær í 14. umferð Inkassodeildar. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið sem heyja hvort um sig baráttu á toppi deildarinnar. Bæði lið byrjuðu leikinn af krafti og börðust hart um boltann til að skapa sér líkleg markfæri.…Lesa meira

true

Slasaðist við Glym

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Ungur karlmaður hafði hrasað og dottið illa í brattlendi á gönguleiðinni að fossinum Glymi í botni Hvalfjarðar. Björgunarsveitafólk ásamt sjúkraflutningamönnum og lækni fóru á vettvang og hlúðu að manninum. Þyrla sótti hinn slasaða og flutti á sjúkrahús í Reykjavík.Lesa meira

true

Sumarsmellur frá Kajak

Raftónlistardúettinn Kajak hefur sent frá sér nýtt lag. Ber það nafnið Shine og er að sögn dúettsins sólríkur sumarslagari. „Shine er sólríkt sumarlag með jákvæðum og einföldum boðskap; láttu ljós þitt skína. Sólskinið kallaði á okkur og nú er því tilvalinn tími til útgáfu. Við erum búnir að setja í fimmta gír í útgáfumálum og…Lesa meira

true

Gufudalskirkja á tímamótum

Gufudalskirkja verður 110 ára nú í haust. Kirkjan er listasmíð, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni en yfirsmiður var Jón Ólafsson bróðir hans. Ríkissjóður kostaði kirkjusmíðina og átti kirkjuna alla tíð, en hún er nú í eigu og vörslu Minjastofnunar. Efnið í kirkjuna kom tilöggvið og númerað frá Noregi. Tryggvi Pálsson var þá bóndi í Gufudal og…Lesa meira

true

Ísfiskur vonast til að hefja vinnslu að nýju um næstu mánaðamót

Þessa dagana er unnið að því að flytja starfsemi fyrirtækisins Ísfisks hf. alfarið upp á Akranes frá Kópavogi. Sem kunnugt er keypti fyrirtækið bolfiskvinnsluhús HB Granda síðastliðið haust, auk hluta fiskvinnslubúnaðar. Vinnsla Ísfisks hófst síðan á Akranesi um miðjan febrúar, samhliða starfsemi fyrirtækisins í Kópavogi. Nú er húsnæði fyrirtækisins við Kársnesbraut í Kópavogi í söluferli…Lesa meira

true

Kaffi Nú er nýtt kaffihús í Stykkishólmi

Kaffihúsið Kaffi Nú var opnað í Stykkishólmi seinni hluta júlímánaðar. Er það staðsett í húsnæði Harbour Hostel við Hafnargötu 4 þar í bæ og heyrir undir hostelið. Allan daglegan rekstur Kaffi Nú annast þau Ania Kobierowska, Halszka Wierzbicka og Seweryn Wójcikowski, en þau eru jafnframt starfsmenn Harbour Hostel. Blaðamaður hitti þau á kaffihúsinu síðastliðinn föstudag…Lesa meira

true

Modulus mun byggja fyrir Bjarg á Akranesi

Fyrirtækið Modulus ehf. mun taka að sér byggingu 33 íbúða fyrir Bjarg íbúðafélag við Asparskóga Akranesi. Samningar þess efnis voru undirritaðir sl. fimmtudag. Frá þessu er greint á heimasíðu Bjargs. Íbúðurnar 33 verða í þremur húsum, við Asparskóga 12, 14 og 16 og hvert hús verður á tveimur hæðum. Framkvæmdir munu hefjast nú í haust…Lesa meira

true

Jafntefli Skallagríms á heimavelli

Skallagrímur gerði jafntefli við Reyni Sandgerði í 13. umferð B-riðils fjórðu deildar í gær. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Gestirnir af Reykjanesinu skoruðu fyrsta mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks þar sem markaskorarinn Magnús Þórir Matthíasson kom sínum mönnum yfir. Magnús Þórir hefur verið drjúgur á tímabilinu fyrir Reynismenn og er kominn með…Lesa meira