Fréttir

true

Nýjar tölur úr veiðihæstu laxveiðiánum

Komnar eru nýjar veiðitölur á vef Landsambands veiðifélaga; angling.is. Samantektin er frá veiði í lok gærdagsins. „Það má segja að það sé kominn haustbragur á veiðitölurnar í þessari samantekt en veiðin hefur gengið víðast hvar ágætlega miðað við árstíma og aðstæður til veiða.“ Sem fyrr er Þverá og Kjarará efst á lista náttúrulegu ánna, komin…Lesa meira

true

Tíu sækjast eftir starfi persónuverndarfulltrúa Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður auglýsti í lok júní laust til umsóknar nýtt starf persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur rann út 26. júlí síðastliðinn og hefur nú verið gert opinbert hverjir sækjast eftir starfinu. Alls bárust tólf umsóknir, en tveir umsækjendur drógu umsóknir sína til baka. Eftir standa því tíu umsóknir, frá níu konum og einum karli. Ráðningarferlið stendur yfir þegar…Lesa meira

true

Skaginn 3X hlýtur styrk til þróunar á SEASCANN

Skaginn 3X hefur hlotið veglegan styrk úr H2020 áætlun Evrópusambandsins sem nefnist „SME Instrument grant phase 2“. Styrkurinn, sem nemur um 260 milljónum íslenskra króna, mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun á SEASCANN, byltingarkenndum myndgreiningarbúnaði sem tegundargreinir og stærðarflokkar fisk með sjálfvirkum hætti um borð í fiskiskipum. „Styrkurinn er afar eftirsóttur og var samkeppnin í…Lesa meira

true

Tvær stofnanir skrá atvinnuleysi

Tvær opinberar stofnanir skrá atvinnuleysi hér á landi. Hagstofan gaf það út í dag að atvinnuleysi í júlí var 2,5%. Samanburður mælinga fyrir júlí 2017 og 2018 sýnir að fjölgaði á vinnumarkaði um 11.300 einstaklinga eða um 0,7 prósentustig. Vinnumálastofnun skráir einnig atvinnuleysi og segir atvinnuleysið hafa verið 2,2% í júlí.Lesa meira

true

Stefna að samruna tveggja norðlenskra afurðafyrirtækja

Hafnar eru viðræður um sameiningu Kjarnafæðis og Norðlenska. Í tilkynningu frá Íslandsbanka, sem veitir félögunum ráðgjöf í samrunaferlinu, segir að með samruna félaganna yrði til öflugur aðili í íslenskri matvælaframleiðslu og búa fyrirtækin að sterkum vörumerkjum. Kjarnafæði er með meginhluta starfsemi sinnar á Svalbarðseyri, en fyrirtækið rekur einnig afurðastöð SAH á Blönduósi og á um…Lesa meira

true

Dularfulla búðin kveður Akranes

„Nú mun Dularfulla búðin flytja frá Akranesi um mánaðamótin og ný starfsemi tekur við í húsinu,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Dularfullu búðarinnar á þriðjudaginn. Komandi helgi verður því síðasta helgin sem staðurinn verður opinn. Það var 27. maí á síðasta ári sem Ingimar Oddsson opnaði Dularfullu búðina við Skólabraut 14 á Akranesi. „Áformin um…Lesa meira

true

Halda síðsumargleði Borgfirðings á Stóra Kroppi

Síðsumargleði hestamannafélagsins Borgfirðings verður haldin laugardaginn 25. ágúst að Stóra-Kroppi í Reykholtsdal. Keppt verður í góðhestakeppni og kappreiðum. Grill, gleði og stuð á dagskrá, en keppni hefst klukkan 14:00.  Kræsingar mæta á svæðið með grillmat og mun maturinn kosta 2.500 kr fyrir fullorðna, 1.250 kr fyrir 6 – 12 ára og frítt fyrir 6 ára…Lesa meira

true

Gaf út ljósmyndabók um St. Franciskussystur

Í síðasta mánuði var gefin út ljósmyndabókin Systurnar í Hólminum – St. Franciskussystur 1935-2009. Eins og nafnið bendir til er þar að finna ljósmyndir frá lífi og starfi St. Franciskussystra á þeim 74 árum sem systurnar dvöldu í Stykkishólmi. Það er Ægir Breiðfjörð Jóhannsson sem á veg og vanda að útgáfu bókarinnar. „Mín afskipti af…Lesa meira

true

Samið um byggingu fimleikahúss á Akranesi

Mánudaginn 13. ágúst síðastliðinn var undirritaður samningur milli Akraneskaupstaðar og verktakafyrirtækisins Spennt ehf. vegna byggingar fimleikahúss á Akranesi. Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni bárust fimm tilboð í verkið, sem opnuð voru 31. maí síðastliðinn. Spennt ehf. átti lægsta tilboðið, sem hljóðaði upp á 607 milljónir króna. Nýtt fimleikahús mun rísa við…Lesa meira

true

Matarvagninn fluttur í Ólafsvík

Matarvagninn The Secret Spot hefur flutt starfsemi sína frá Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi til Ólafsvíkur, en hjónin Víðir Haraldsson og eiginkona hans Kolbrún Þóra Ólafsdóttir eru búsett í Ólafsvík. Kolbrún segir að þau hafi óvænt fengið stöðuleyfi á Sáinu í Ólafsvík og hafi því gripið tækifærið og flutt matarvagninn sinn þangað. „Svo eru skólarnir…Lesa meira