Fréttir

true

Einar Örn setti Íslandsmet

Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum í opnum og aldurstengdum flokkum fór fram í Kópavogi síðasta laugardag. Mótið var fámennt að þessu sinni, að því er fram kemur á heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands, en engu að síður voru þónokkur met slegin. Einar Örn Guðnason keppti fyrir hönd Kraftlyftingafélags Akraness og stóð uppi sem sigurvegari í 105 kg flokki. Hann…Lesa meira

true

Snæfell sigraði eftir baráttuleik í Hólminum

Það var að duga eða drepast fyrir Snæfell í úrslitaviðureigninni gegn Keflavík þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gær. Gestirnir höfðu sigrað tvo leiki en Snæfell engan og því aðeins um eitt að ræða; Snæfell varð að sigra, ellegar myndu Keflvíkingar hampa Íslandsmeistaratitlinum. Eftir mikinn og jafnan baráttuleik þar sem varnarleikur var aðalsmerki liðanna var…Lesa meira

true

Frábær árangur ÍA á Bikarmóti Íslands í klifri

Brimrún Eir Óðinsdóttir tryggði sér annað sætið í flokki unglingsstúlkna á glæsilegu Bikarmeistaramóti sem fram fór í Klifurhúsinu um helgina. Stúlkurnar klifruðu fjórar leiðir og Brimrún Eir toppaði þrjár leiðir í fjórum tilraunum. Gabríela Einarsdóttir úr Björkinni toppaði þrjár leiðir í þremur tilraunum og fór því með sigur af hólmi. Brimrún Eir hafði áður tryggt…Lesa meira

true

Felldu tillögu um að fjölga erlendum leikmönnum

Árlegt körfuknattleiksþing KKÍ fór fram á laugardaginn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Hannes S. Jónsson var einn í framboði til formanns og var hann sjálfkjörinn sem og aðrir stjórnarmenn sem gáfu kost á sér í stað þeirra sem viku sæti. Reikningar KKÍ voru samþykktir á þinginu, en á síðasta starfsári varð 15,5 milljóna króna tap á…Lesa meira

true

Fyrirlestrar í héraði: “Er það Mímir við sinn brunn?”

Á morgun, þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:30 flytur Simon Halink doktorsnemi í sagnfræði fyrirlesturinn “Er það Mímir við sinn brunn?” Snorri Sturluson þjóðardýrlingur Norðurlanda í Snorrastofu í Reykholti. Á þessu ári eru nákvæmlega sjötíu ár liðin frá því að Snorrahátíðin 1947 var haldin í Reykholti. Á sólríkum degi í júlímánuði sama ár, myndaðist umferðaröngþveiti í…Lesa meira

true

Leyfi til að elska – ráðstefna um foreldraútilokun

Félag um foreldrajafnrétti og Börnin okkar standa að ráðstefnunni Leyfi til að elska – um foreldraútilokun og afleiðingar hennar fyrir börn og foreldra. Ráðstefnan fer fram í Háskólabíói í Reykjavík á alþjóðlegum degi vitundarvakningar um foreldraútilokun, þriðjudaginn 25. apríl klukkan 13:00-16:30. „Foreldraútilokun, meðvituð eða ómeðvituð, er ákveðið mynstur sem felur í sér ferli og afleiðingu…Lesa meira

true

Sóknarmaður til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við pólska sóknarmanninn Patryk Stefanski og mun hann leika með liðinu í Pepsi deild karla í sumar. Patryk kom á reynslu til ÍA á meðan liðið var í æfingaferð á Spáni nú í vor. Spilaði hann æfingaleik gegn HK í ferðinni þar sem hann skoraði og sýndi að þar fer geysilega…Lesa meira

true

„Hin lögin“ flutt á Bítlaheiðurstónleikum á Gamla kaupfélaginu

Laugardaginn 22. apríl verða Bítlaheiðurstónleikar haldnir í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi. Sveitin Helter Skelter mun þar skapa kvöldstund sem engin alvöru Bítlaaðdáandi ætti að missa af, eins og segir í tilkynnningu. Á dagskrá verða perlur áranna 1966-1970, sem fólk elskar af plötunum en fór stundum minna fyrir á topplistunum. Einnig fá nokkrar vel valdar sögur…Lesa meira

true

Samið við Sæferðir um Flóasiglingar

Tvö tilboð bárust ferjusiglingar milli Akraness og Reykjavíkur. Hagstæðara tilboðið áttu Sæferðir og var gengið að því. Stefnir fyrirtækið að því að hefja siglingar seinni hlutann í maí, en skv. útboðsgögnum skulu siglingar hefjast eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Um er að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða með stuðningi sveitarfélaganna tveggja, Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar.…Lesa meira

true

Nýr veitingastaður opnaður í Ólafsvík

Síðastliðinn laugardag opnuðu hjónin Justyna Ondycz og Mikolaj Ondycz veitingastaðinn Matarlist við Ólafsbraut í Ólafsvík. Þar var áður veitingastaðurinn Hobbitinn. Justyna segir í samtali við Skessuhorn að eigin veitingarrekstur hafi verið draumur hennar í mörg ár og þarna væri kjörinn staður til þess að láta draum sinn rætast. „Við hjónin höfum verið lengi í þessum…Lesa meira