Fréttir

true

Skaginn 3X selur búnað um borð í Drangey

Í dag var á sjávarútvegssýningunni í Brussel undirritaður samningur milli Skaginn 3X og FISK Seafood á Sauðárkróki um kaup þess síðarnefna á vinnslu- og lestarbúnaði fyrir nýsmíði fyrirtækisins Drangey SK2 sem sjósett var í Tyrklandi í síðustu viku. Skipið er væntanlegt til landsins síðla sumars. Vinnslubúnaðurinn byggir á SUB-CHILLING™ tækni þeirri er Skaginn 3X hefur…Lesa meira

true

Vesturlandssýning 2017 í Faxaborg

Hestamannafélögin Faxi og Skuggi standa fyrir Vesturlandssýningunni 2017 sem verður haldin í Faxaborg í Borgarnesi föstudaginn 28. apríl klukkan 20:00. Þar munu ræktunarbú af svæðinu koma fram. Börn og unglingar sýna hesta sína, FT verður með atriði, Íslandsmeistari frá 2016 kemur fram á gæðingi sínum og nokkrir glæsilegir stóðhestar munu mæta á svæðið. Þeirra á…Lesa meira

true

Héldu almannavarnaæfingu í Hvalfjarðargöngum

Umfangsmikil almannavarnaæfing var í Hvalfjarðargöngum í gærkvöldi og fram eftir nóttu. Æfingin markaði jafnframt fyrstu næturlokun í göngunum í þessari viku vegna vorhreingerninga, en lokað verður fyrir umferð næstu nætur frá miðnætti og til og með aðfararnótt föstudags. Í gærkvöldi var göngunum hins vegar lokað klukkan 22 og blásið til umfangsmikillar æfingar. Sviðsett var alvarlegt…Lesa meira

true

Hikstuðu af stað að afloknu hrygningarstoppi

Síðastliðinn föstudag lauk hrygningarstoppinu og máttu bátar setja út veiðarfæri klukkan 10 að morgni þess dags. Voru bátar að tínast úr höfnum Snæfellsbæjar fram eftir morgni. Þeirra á meðal var Brynja SH. Ekki vildi betur til en svo þegar Brynja var kominn rétt út fyrir höfnina í Ólafsvík að aðalvél bátsins stöðvaðist og þurftu skipverjar…Lesa meira

true

Göngur og réttir verða sumsstaðar færðar fram um viku

Bændur víða um land undirbúa nú að flýta göngum og réttum í haust. Það er gert að ósk sláturleyfishafa sem mælast til þess að geta byrjað sláturtíð fyrr í haust en tíðkast hefur. Ástæður þessa er mikil birgðastöða lambakjöts og sú staðreynd að kjöt, einkum læri, af stærstu dilkunum er það sem helst myndar birgðirnar.…Lesa meira

true

Hillir undir samning um endurbyggingu hjúkrunardeildar í Stykkishólmi

Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi segir að allt frá ársbyrjun 2010, þegar Heilbrigðisstofnun Vesturlands var stofnuð og St.Franciskusspítalinn var settur undir yfirstjórn HVE, hafi mikil þrautarganga staðið við að koma af stað endurbyggingu hjúkrunardeildar sjúkrahússins. Þeirri hjúkrunardeild er ætlað að leysa Dvalarheimili Stykkishólms af hólmi með sérinnréttuðu húsnæði. „Allan þennan tíma hafa bæjaryfirvöld átt í…Lesa meira

true

Skeifudagurinn er uppskeruhátíð reiðmennsku við LbhÍ

Skeifudagurinn, keppni nemenda í hrossarækt III við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, fór fram á Mið-Fossum fyrsta dag sumars. Að hátíðinni stendur sem fyrr Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri og fór dagurinn vel fram í alla staði. Að lokinni keppni var kaffihlaðboð í Ásgarði á Hvanneyri þar sem hið vinsæla folatollahappdrætti fór fram. Þar er í vinninga…Lesa meira

true

Þriðjungur tjónabíla á of slitnum dekkjum

Rúmlega þriðjungur þeirra hundrað tjónabíla sem tryggingafélagið VÍS skoðaði í febrúar og mars síðastliðnum voru á of slitnum dekkjum. Samkvæmt reglugerð frá árinu 2014 skal dekkjamynstur vera að lágmarki 3 mm að dýpt frá 1. nóvember til og með 14. apríl. Yfir sumartímann er aftur á móti samkvæmt reglugerðinni nægjanlegt að mynstursdýptin sé að lágmarki…Lesa meira

true

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í þessari viku

Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur í þessari viku. „Vakin er sérstök athygli á að lokað verður kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl [í kvöld] en á miðnætti næstu þrjú kvöld þar á eftir. Næturlokun ganganna á þessum tíma árs er hefðbundinn vor- og sumarboði, tími sem nýttur er til viðhalds af ýmsu tagi og…Lesa meira

true

Valdís Þóra í 53. sæti á Spáni

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 53. sæti á Estrella Damm mótinu á Spáni sem lauk á sunnudag. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu. Valdís byrjaði frekar illa á fyrsta hring síðastliðinn miðvikudag og var á fjórum höggum yfir pari eftir átta holur. Eftir það sneri hún heldur betur…Lesa meira