Fréttir

true

Vesturlandsmótið í tvímenningi hefst í næstu viku

Briddsfélag Borgarfjarðar lauk í gær tveggja kvölda páskatvímenningi í Logalandi. Með sigur af hólmi fóru ungstirnin Heiðar Árni og Logi eftir ævintýralegt skor síðara keppniskvöldið, eða um 70%. Töldu menn að eftir að þeir sáu verðlaunin hafi þeir orðið hungraðir í sigur eins og börn við nammibar stórverslunar. Eftir fyrra kvöldið voru þeir töluvert neðan…Lesa meira

true

Sumaropnunartími Snorrastofu hafinn

Snorrastofa í Reykholti hefur um árabil rekið þjónustu við gesti staðarins og í gestastofu hennar er leitast við að koma sem best til móts við þarfir þeirra fjölmörgu sem heimsækja staðinn. Undanfarin ár hefur Snorrastofa skipt úr vetraropnunartíma yfir í sumartíma við mánaðamótin apríl og maí en nú hefur verið ákveðið að færa hann fram…Lesa meira

true

Trausti sæmdur gullmerki Sundsambands Íslands

Á Sundþingi sem fram fór helgina 23.-24 mars síðastliðinn var Trausti Gylfason formaður Sundfélags Akranes sæmdur Gullmerki Sundsambands Íslands. Það fær hann fyrir faglega mótsstjórn á Smáþjóðaleikum á Íslandi árið 2015 og störf í þágu sundíþróttarinnar á Íslandi. Trausti hefur gegnt starfi formanns SA síðan 2013.Lesa meira

true

Stóru upplestrarkeppninni lokið á Vesturlandi

Lokahátíðum Stóru upplestrarkeppninnar er nú lokið um allt Vesturland, en haldnar eru þrjár svæðaskiptar lokahátíðar. Ár hvert hefst keppnin í nóvember, á degi íslenskrar tungu, og lýkur í mars með því að valdir eru bestu upplesarar 7. bekkjar í hverju byggðarlagi eða í umdæmi hverrar skólaskrifstofu. Keppninni er skipt í tvo hluta, ræktunarhluta og hátíðarhluta.…Lesa meira

true

Valdís Þóra glímdi við meiðsli í Frakklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche mótinu sem fram fór í París um helgina. Valdís glímdi við axlarmeiðsli sem gerðu henni erfitt fyrir í mótinu. Varð hún að láta af undirbúningi eftir fyrstu níu holur æfingahringsins miðvikudaginn fyrir mótið og hvíla öxlina á fimmtudag, daginn fyrir…Lesa meira

true

Íslandsbanki og Leynir endurnýja samstarfssamning

Síðastliðinn fimmtudag endurnýjuðu Golfklúbburinn Leynir og Íslandsbanki Akranesi samstarfssamning þess efnis að bankinn styðji við barna- og unglingastarf golfklúbbsins. Magnús D. Brandsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akranesi og Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Leynis, skrifuðu undir samninginn. „Íslandsbanki hefur til margra ára stutt vel við barna- og unglingastarf félagsins en samstarfsaðilar af þessu tagi eru afar mikilvægir þegar…Lesa meira

true

Keflavík jafnaði metin í Borgarnesi

Skallagrímur og Keflavík áttust við í undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Skallagrímur leiddi einvígið með einum sigri gegn engum en Keflavík jafnaði metin í gær í miklum baráttuleik. Liðin hafa því unnið sinn útileikinn hvort og staðan er jöfn, 1-1. Varnarleikur var aðalsmerki beggja liða í gær og leikurinn…Lesa meira

true

Ekki einhugur um argreiðslu OR

Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu til eigenda að upphæð 750 milljónir króna. Tillagan verður tekin fyrir á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn verður í Iðnó og hefst í hádeginu í dag. Tveir fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórninni, borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir, greiddu atkvæði gegn tillögunni.…Lesa meira

true

Snæfell sigraði örugglega

Snæfell heimsótti Stjörnuna þegar liðin mættust öðru sinni í undanúrslitaviðureign úrslitakeppni kvenna á laugardag. Skemmst er frá því að segja að Snæfellskonur sigruðu örugglega, 70-86 eftir að hafa haft yfirhöndina allan leikinn. Þær leið einvígið með tveimur sigrum gegn engum og eru komnar í vænlega stöðu fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer í Stykkishólmi…Lesa meira

true

HB Grandi býður út smíði á nýjum frystitogara

Stjórn HB Granda hefur ákveðið að setja í útboð smíði nýs frystitogara. Togarinn er hannaður af Rolls Royce í Noregi og verður 81 m langur, 17 m breiður og hefur lestarrými fyrir um þúsund tonn af frystum afurðum á brettum. Gert er ráð fyrir að ákvörðun um smíðina liggi fyrir í byrjun maí næstkomandi og…Lesa meira