Fréttir

true

Telur mergæxli algengari á Akranesi en annars staðar

Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor í blóðsjúkdómum við Háskóla Íslands, telur að mergæxli séu algengir meðal íbúa á Akranesi en annars staðar. Mergæxli er krabbamein í beinmerg og er meinið skylt hvítblæði. Á síðasta ári var í Skessuhorni ítarlega greint frá viðamikilli rannsókn á vegum HÍ undir stjórn Sigurðar. Rannsóknir bar heitið Blóðskimun til bjargar og…Lesa meira

true

Tap hjá Skallagrími í lokaleiknum

Skallagrímur laut í lægra haldi gegn Val þegar liðin mættust í lokaleik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík. Leikurinn skipti engu máli upp á stöðu liðanna í deildinni en var engu að síður jafn og spennandi framan af. Valskonur voru hins vegar sterkari í síðari hálfleik og sigruðu…Lesa meira

true

Bikarinn á loft eftir bragðdaufan leik

  Snæfellskonur hófu deildarmeistarabikarinn á loft eftir lokaleik deildarinnar gegn Keflavík sem fram fór í Stykkishólmi í gær. Gestirnir sigruðu reyndar leikinn, 59-72 og jöfnuðu þar með Snæfell að stigum. Þetta var hins vegar eini leikur liðanna í vetur sem Keflavík sigraði, Snæfell vann hina þrjá og hafði því tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn í…Lesa meira

true

150 ára afmæli Borgarness er í dag

Í dag er lögformlegur afmælisdagur Borgarness, 150 ára. Af því tilefni er margt á döfinni, í dag og næstu vikur. Klukkan 15 heldur sveitarstjórn Borgarbyggðar hátíðarfund í elsta íbúðarhúsi bæjarins, Kaupangi. Eftir það verður tekin skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Grunnskóla Borgarness og síðdegis verður opnuð ljósmyndasýning í Safnahúsi með ýmsum áhugaverðum ljósmyndum úr bæjarlífinu…Lesa meira

true

Formaður og varaformaður FEBAN segja af sér

Með bréfi til félaga sinna í Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni hafa Jóhannes Finnur Halldórsson formaður félagsins og Júlíus Már Þórarinsson varaformaður boðað afsögn sína úr stjórn frá og með framhaldsaðalfundi í félaginu sem fram fer 31. mars nk. Ástæða afsagnarinnar eru m.a. deilur um húsnæðismál félagsins og ávirðingar í þeirra garð vegna…Lesa meira

true

Elsti núlifandi Grundfirðingurinn

Laugardaginn 18. mars síðastliðinn fagnaði Elna Bárðarson 95 ára afmæli sínu á Dvalaheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði, en hún er elsti núlifandi Grundfirðingurinn. Elna tók á móti gestum á laugardaginn og var fjölmenni í veislunni. Starfsmenn Fellaskjóls sungu afmælissönginn á finnsku fyrir afmælisbarnið en Elna fæddist í Finnlandi en hefur búið á Íslandi mestan part ævi…Lesa meira

true

Stækkun Hólabúðar á Reykhólum er hafin

Skessuhorn greindi frá því í nóvembermánuði að fyrirhuguð væri stækkun á húsnæði verslunarinnar Hólabúðar á Reykhólum. Búðin verður lengt um þrjá metra og svo breikkuð um 4,8 metra til austurs. Framkvæmdir hófust formlega í gær, þriðjudaginn 21. mars, þegar Brynjólfur Smárason verktaki mætti á gröfunni og byrjaði að grafa fyrir stækkuninni. „Reyndar var byrjað að…Lesa meira

true

Þriðji færeyski línubáturinn sem landar í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Skörin Fd-750 landaði rúmum 32 tonnum í Ólafsvíkurhöfn á síðasta laugardag. Er þetta þriðji færeyski báturinn sem landar í Ólafsvík í vetur. Allir þessir bátar eru útbúnir með togarakössum sem hafa hingað til verið hífðir upp úr bátunum og sturtað í kör á bryggjunni. Kallaði það á meiri mannskap en vegna veðurs um…Lesa meira

true

Tungnamenn öflugir í einmenningi

Síðastliðið mánudagskvöld fór fram árleg keppni Briddsfélags Borgarfjarðar í einmenningi. Spilað var á fimm borðum. Keppni var fremur jöfn framan af en þó höfðu efstu spilarar áunnið sér dágott forskot þegar yfir lauk. Nágrannar úr Stafholtstungunum sigruðu með glæsibrag og ljóst að á þeirra bæjum mun ekki skorta páskaegg. Kristján Axelsson í Bakkakoti varð hlutskarpastur…Lesa meira

true

Deildarbikar á loft í Stykkishólmi

Stúlkurnar í Snæfelli fengu í gærkvöldi afhentan deildarmeistarabikar eftir að lokaumferð deildarinnar lauk, þar sem Snæfell tók á móti Keflavík. Það var Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ sem afhenti bikarinn Gunnhildi Gunnarsdóttur fyrirliða Snæfells. Eilítið skyggði á gleðina að Snæfell tapaði viðureign sinni við Keflavík með 59 stigum gegn 72. Snæfell mætir Stjörnunni í undanúrslitum úrslitakeppninnar,…Lesa meira