Fréttir

true

Loðnufrysting í fullum gangi

Mörg skip og bátar eru á sjó í dag vestan við landið, enda veður með ágætum. Loðnuveiðar og vinnsla gengur að óskum en frysting loðnuhrogna hófst á Akranesi í síðustu viku og er unnið á vöktum allan sólarhringinn. Stutt er á miðin og skiptast uppsjávarveiðiskip HB Granda; Víkingur AK og Venus NS, á um að…Lesa meira

true

Ætla að loka þjóðveginum um Berufjörð í dag

Íbúar í Berufirði á Austurlandi stefna að því að loka Hringveginum um fjörðinn eftir hádegi í dag til að mótmæla því að horfið verði frá uppbygginu nýs vegar yfir fjörðinn. Sú ákvörðun hefur vakið upp hörð viðbrögð. Í héraðsmiðlinum Austurfrétt er haft eftir Berlingdi Häsler á Karlsstöðum í Berufirði að þar í sveit sé fólk…Lesa meira

true

Chihuahua tík tekin úr bíl á Akranesi

Lítill tík af gerðinni chihuahua var stolið úr bíl sem stóð utan við Landsbankann á Akranesi klukkan 14 í gær. Ekkert hefur spurst til hennar síðan. Eigandi tíkurinnar lýsir eftir henni og biður fólk að hafa augun opin. „Lúsí er lítil chihuahua tík, svört/brún & hvít. Hún geltir við umgang (ef t.d. er bankað á…Lesa meira

true

Í lágflugi á fjögurra hreyfla flugvél

Laust fyrir hádegi í gær urðu nokkrir Borgfirðingar varir við stóra fjögurra hreyfla, gráleita flugvél sem flogið var lágflugi yfir héraðið. Sást meðal annars til vélarinnar yfir Hvítá í Borgarfirði og Hvanneyri og var henni samkvæmt lýsingu sjónarvotta flogið vestur fyrir Hafnarfjall og síðan inn með Hvalfirði og hvarf svo sjónum yfir Botnssúlum. Vegfaranda á…Lesa meira

true

Ráslisti fyrir Vesturlandsdeildina

Í kvöld verður keppt í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg, Borgarnesi. Húsið verður opnað kl. 18.00 og hefst mótið kl. 19.00. Ráslisti fyrir kvöldið er þessi: 1. Gyða Helgadóttir – Óðinn frá Syðra-Kolugili – KB/Fígaró/Mosi ehf 2. Haukur Bjarnason – Gýgur frá Skáney – Leiknir/Skáney 3. Benedikt Þór Kristjánsson – Elva frá Árbakka…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af í síðari hálfleik

ÍA og Valur mættust í Val í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik stungu gestirnir af í þeim síðari og unnu að lokum stórsigur, 70-98. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Valsmenn náðu smá rispu og sex stiga forystu seint í eikhlutanum en Skagamenn…Lesa meira

true

Urðu að játa sig sigraða í spennandi leik

Skallagrímur tók á móti Tindastóli í jöfnum og spennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Skallagrímur leiddi stóran hluta leiksins en aldrei skildu meira en sjö stig liðin. Sjö stigum munaði einmitt á liðunum þegar flautað var til leiksloka, en þá voru það gestirnir frá Sauðárkróki sem leiddu. Lokatölur í Borgarnesi urðu…Lesa meira

true

Snjóinn gæti tekið upp eftir helgina

Spáð er hæglætis veðri í dag og á morgun. Á sunnudag verður norðaustlæg átt og þykknar upp vestantil á landinu þar sem verður frostlaust við ströndina en vægt frost inn til landsins. Gera má ráð fyrir að snjóinn taki upp smám saman en reikna má með klakabunkum þar sem hann hefur náð að troðast niður.…Lesa meira

true

Robert Menzel gengur til liðs við ÍA

Pólski hafsentinn Robert Menzel hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA út leiktíðina. Robert er 26 ára gamall og hefur spilað 70 leiki í efstu og næst-efstu deildinni í Póllandi en hann lék síðast með Podbeskidzie Bielsko-Biala í efstu pólsku deildinni. Hann kom á reynslu til liðsins fyrir tveimur vikum og ákveðið var að semja við þennan…Lesa meira

true

Andlát – Guðjón Finnbogason

Guðjón Finnbogason, fyrrverandi verslunarmaður, knattspyrnukappi og knattspyrnudómari á Akranesi er látinn, 89 ára að aldri. Guðjón var fæddur 2. desember 1927, næstyngstur fimm systkina. Hann bjó alla tíð á Akranesi og starfaði í 56 ár, nær alla sína starfsævi, sem verslunarmaður í hinni sögufrægu Axelsbúð. Þá kom hann víða við í íþróttastarfi á Akranesi. Hann…Lesa meira