
Harður árekstur tveggja bíla, jeppa og jepplings, varð á brúnni yfir Laxá í Leirársveit um klukkan 17 í dag. Við áreksturinn skullu þeir báðir út í vegrið en stöðvuðust inni á veginum. Sex manns voru í bílunum og voru þrír fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík en aðrir þrír voru fluttir með sjúkrabílum.…Lesa meira








