Fréttir

true

Kynna áætlanir um tvö svæði

Akraneskaupstaður hefur boðað til opins kynningarfundar á skipulagslýsingum fyrir Sementsreit annars vegar og Dalbraut – Þjóðbraut hins vegar. Fundurinn verður fimmtudaginn 16. febrúar í sal Grundaskóla og áætlað að hann standi yfir frá klukkan 18:00 til 20:00.Lesa meira

true

Guðmundur heiðursgestur á bikarúrslitaleik

Guðmundur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi var sérstakur heiðursgestur körfuknattleiksdeildar Skallagríms á úrslitaleik Keflavíkur og Skallagríms í Maltbikarnum á laugardaginn. Guðmundur er upphafsmaður körfuboltans í Borgarnesi en hann hóf að skipuleggja æfingar innan Skallagríms skömmu eftir að hafa flutt í Borgarnes árið 1958. Síðan hefur körfubolti ætíð verð stundaður innan félagsins. Guðmundur hafði kynnst…Lesa meira

true

Lundey seld til Noregs

HB Grandi hefur selt uppsjávarveiðiskipið Lundey NS til Noregs. Söluverðið er 124 milljónir króna. Kaupandi er norska útgerðarfélagið Partrediet Karolös ANS í Bekkjarvik og staðgreiðir það skipið. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri fyrirtækisins segir að kaupandi Lundeyjar hafi fengið tilraunaveiðileyfi hjá norskum stjórnvöldum á laxsíld, m.a. á gulldeplu, sem íslensk skip veiddu um hríð. Verður skipið notað…Lesa meira

true

Dansbylting UN Women í Borgarnesi og Rifi

„Milljarður rís 2017“ er yfirskrift dansgjörnings sem verður í Hjálmakletti í Borgarnesi og Frystiklefanum í Rifi á Snæfellsnesi föstudaginn 17. febrúar kl. 12-13. „Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim. Við tökum því afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum,“ segir í fréttatilkynningu þar sem allir eru hvattir til að mæta. Í ár verður minning…Lesa meira

true

Ráðin mannauðsstjóri hjá Borgarbyggð

Ingibjörg Guðmundsdóttir í Hafnarfirði hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra hjá Borgarbyggð. Fjórtán umsóknir bárust um starfið þegar það var auglýst en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Ingibjörg er með diplómapróf í starfsmannastjórnun og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur áður starfað við starfsþróun og mannauðsmál hjá Hafnarfjarðarbæ.Lesa meira

true

ÍA fékk Kvennabikarinn 2016

Ársþing Knattspyrnusambands Íslands var haldið í Vestmannaeyjum um liðna helgi. Á þinginu voru veittar allnokkrar viðurkenningar, bæði fólki og einstökum félögum. Kvennabikarinn svokallaði kom í hlut ÍA. Bikarinn er veittur því liði sem þykir hafa sýnt af sér háttvísi og prúðmannlegan leik í Pepsi deild kvenna á síðasta keppnistímabili. Aðeins sjö sinnum fengu Skagakonur að…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst í góðri sókn á nýju ári

Háskólinn á Bifröst hefur verið í góðri sókn síðustu árin. Alls eru um 600 nemendur skráðir til náms við skólann á vorönn 2017 sem er svipaður fjöldi og var á sama tíma í fyrra. Flestir eru nemendurnir í grunn- og meistaranámi eða tæplega 500. Undanfarin ár hefur nemendafjöldinn farið vaxandi við Háskólann á Bifröst og…Lesa meira

true

Fasteignasalar óttast afleiðingar misvægis framboðs og eftirspurnar

Félag fasteignasala á Íslandi er innan sameiginlegra samtaka fasteignasala á Norðurlöndum (NEU) en samtökin mynd félög fasteignasala á öllum Norðurlöndunum, alls um 17.000 fasteignasalar. Samstarf félaganna grundvallast á sameiginlegum gildum og hagsmunum þjóðanna. Nú upplifa fasteignasalar á öllum Norðurlöndunum óheppilegar verðhækkanir og þróun á hluta fasteignamarkaðar í öllum löndunum. Ástæðuna segja þeir að stærstum hluta…Lesa meira

true

Áttatíu hafa skráð heimagistingu frá áramótun

Nú má nálgast lista á vef sýslumanna um skráða heimagistingu hér á landi, þ.e. þær fasteignir og þá einstaklinga sem fengið hafa staðfest hjá sýslumanni að þeim sé heimilt að bjóða heimagistingu skv. lögum þar um sem tóku gildi 1. janúar síðastliðinn. Slóðin er www.heimagisting.is og þar efst til hægri er hlekkur á þessar upplýsingar.…Lesa meira

true

Vefsíða um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja

Síðastliðinn föstudag opnaði Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttisráðherra nýja vefsíðu sem Vinnumálastofnun hefur sett upp í samvinnu við Ríkisskattstjóra, Vinnueftirlitið, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Hér er á ferðinni upplýsingasíða þar sem nálgast má fræðslu um réttindi og skyldur erlendra þjónustufyrirtækja sem senda fólk til starfa hér á landi auk lagareglna sem gilda um starfsemi…Lesa meira