Fréttir

true

Harður árekstur á brúnni yfir Laxá í Leirársveit

Harður árekstur tveggja bíla, jeppa og jepplings, varð á brúnni yfir Laxá í Leirársveit um klukkan 17 í dag. Við áreksturinn skullu þeir báðir út í vegrið en stöðvuðust inni á veginum. Sex manns voru í bílunum og voru þrír fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík en aðrir þrír voru fluttir með sjúkrabílum.…Lesa meira

true

Endless Summers – nýtt lag Einars Þórs

Borgnesingurinn Einar Þór Jóhannsson tónlistarmaður hefur sent frá sér nýtt lag sem nefnist Endless Summers. Lagið var hljóðritað í Stúdíó gott hljóð hjá Sigurþór Kristjánssyni í Borgarnesi en söngur og hljóðfæraleikur er í höndum Einars Þórs sjálfs. Myndband á Youtube gerði Ríkharður Mýrdal Harðarson. Semsagt borgnesk afurð og það af fínni gerðinni. „Þetta lag varð…Lesa meira

true

Í skoðun að innheimta vegtolla til að flýta vegaframkvæmdum

Í samgönguráðuneytinu er nú til skoðunar að hefja gjaldtöku á vegfarendur sem allar stofnbrautir til og frá höfuðborgarsvæðinu; á Suðurland, Reykjanes og Vesturland. Gjaldtaka myndi standa straum af endurbótum á þessum vegum. Jón Gunnarsson samgönguráðherra segir í samtali við mbl..is í dag að starfshópur innan ráðuneytisins vinni nú að skilgreiningi þessara hugmynda um gjaldtöku. Um…Lesa meira

true

Valdís Þóra sátt eftir fyrsta mótið í Evrópumótaröðinni

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr GL á Akranesi, endaði í 51.-53. sæti á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröð kvenna sem spilað var í Ástralíu fyrir og um helgina. Valdís lék samtals á höggi undir pari á hringjunum þremur og var nokkuð sátt með spilamennskuna. Í viðtali við kylfing.is segir hún að það hafi verið fínt…Lesa meira

true

Víða hvasst fram eftir degi

Greiðfært er um allt land, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun. Þó eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði, Hólasandi, Dettifossvegi og í Eldhrauni. Sumsstaðar er nokkuð hvasst svo sem á norðanverðu Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði og á Hálfdán.Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði í spennandi bikarúrslitaleik

Skallagrímur laut í lægra haldi í dag gegn Keflavík í æsispennandi úrslitaleik Maltbikars kvenna í körfubolta. Leikurinn fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Lokatölur leiksins urðu 65-62 fyrir Keflvíkinga sem þar með unnu sinn fjórtánda bikarmeistaratitil í sögunni. Afar góð stemning var á leiknum og voru stelpurnar úr Borgarnesi studdar dyggilega af hundruðum Skallagrímsmanna sem létu…Lesa meira

true

„Ekki talað um annað í Borgarnesi“

Skallagrímur mætir Keflavík í úrslitum Maltbikars kvenna í körfuknattleik á morgun, laugardaginn 11. febrúar. Liðið tryggði sér sæti í úrslitaleiknum eftir hádramatískan sigur á Snæfelli í mögnuðum undanúrslitaleik síðasta miðvikudag. Borgnesingar fjölmenntu í Laugardalshöllina í undanúrslitum gegn Snæfelli og að sjálfsögðu ætla þeir að endurtaka leikinn í bikarúrslitaleiknum á morgun. Mikil stemning er í bænum…Lesa meira

true

Andlát – Imba á Rauðsgili

Ingibjörg Jónsdóttir, Imba frá Rauðsgili eins og hún var jafnan kölluð, er látin 76 ára að aldri. Imba var fædd í Biskupstungum vorið 1940. Hún missti föður sinn ung og flutti þá ásamt móður sinni og tveimur systkinum til Reykjavíkur þar sem hún ólst upp. Ung gerðist Imba kaupakona að Rauðsgili í Hálsasveit þar sem…Lesa meira

true

Gallerí Ozone var opnað í dag

Verslunin Gallerí Ozone á Akranesi var opnuð á ný eftir eigendaskipti í morgun. Nýir eigendur verslunarinnar eru Skagahjónin Maren Rós Steindórsdóttir og Andri Júlíusson. Þau keyptu reksturinn af Huga Harðarsyni og Elsu Jónu Björnsdóttur sem höfðu þá rekið verslunina óslitið frá árinu 1988. Í samtali við Skessuhorn kváðust þau Maren og Andri ánægð með þá…Lesa meira

true

Brýnt að árlega verði unnið að uppbyggingu og viðhaldi vega

„Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir vonbrigðum varðandi fyrirætlanir yfirvalda samgöngumála sem kynnt hefur verið af starfsmönnum Vegagerðarinnar á Vesturlandi að fella niður fjárveitingar til þeirra vegaframkvæmda sem voru fyrirhugaðar á árinu 2017 í sveitarfélaginu miðað við samþykkta Vegaáætlun frá árinu 2016,“ segir í ályktun sveitarstjórnar sem samþykkt var í gær 9. febrúar. „Mjög brýnt er að unnið…Lesa meira