Fréttir

true

Áhugi á frjálsum íþróttum á Akranesi

Undanfarnar vikur hefur Ungmennafélagið Skipaskagi á Akranesi staðið fyrir frjálsíþróttaæfingum fyrir börn og unglinga sex ára og eldri. Þær fara fram tvisvar í viku hverri, á mánudögum og miðvikudögum. Mun þetta vera í fyrsta sinn um árabil sem staðið er fyrir frjálsíþróttaæfingum á Akranesi, í það minnsta yfir vetrartímann. Farið var af stað með æfingarnar…Lesa meira

true

Undir aldri og með fölsuð skilríki

Lögreglan á Vesturlandi hafði afskipti af fimm ungmennum sem stödd voru á skemmtistað á Akranesi í vikunni sem leið. Þau höfðu ekki aldur til veru inni á staðnum. Öll reyndust ungmennin vera með röng skilríki í sínum fórum, þ.e. skilríki eldri einstaklinga. Skilríkin voru tekin í vörslu lögreglu og fólkinu ekið heim og rætt við…Lesa meira

true

Pottaleppar héldu blót í „Viskubrunninum“

Það er nokkuð árviss atburður að þeir sem hittast í „hádegispottinum“ í sundlauginni í Borgarnesi haldi upp á blautan þorra. Blótið sjálft er haldið í þessum helsta vizkubrunni bæjarins. Vizkubrunnurinn er heiti pottur númer eitt í íþróttamiðstöðinni. Þessi hefð pottaleppanna er orðin meira en aldarfjórðungs gömul og varð upphaflega til í „Litla pottinum“ í innisundlauginni.…Lesa meira

true

„Bragðgóðar, lífrænar og hollar“

Karen Jónsdóttir, sem á og rekur verslanir Matarbúrs Kaju og kaffihúsið Café Kaja, hóf nýverið framleiðslu á lífrænum hrákökum. Eru kökurnar nú komnar í dreifingu og fáanlegar í þremur verslunum Hagkaupa, Ljómalind í Borgarnesi, Fisk kompaníinu á Akureyri og á kaffihúsinu Yogafood, sem Þorbjörg Hafsteinsdóttir á og rekur í JL húsinu í Reykjavík. „Tegundirnar eru…Lesa meira

true

Verkfall sjómanna hefur haft alvarleg áhrif

„Bæjarráð Akraness lýsir yfir þungum áhyggjum af yfirstandandi sjómannaverkfalli og hvetur samningsaðila til að ná sáttum án tafar,“ segir í ályktun sem bæjarráð samþykkti á fundi í gær. „Verkfallið hefur þegar haft alvarleg áhrif á einstaklinga, heimili og fyrirtæki á Akranesi og á íslenskt samfélag í heild sinni.“Lesa meira

true

Samþykkja að setja ferjusiglingar í auglýsingaferli

Nú hafa bæði bæjarráð Akraneskaupstaðar og borgarráð Reykjavíkur samþykkt að auglýsa tilraunaverkefni um beinar siglingar 50 til 100 manna ferju milli Reykjavíkur og Akraness. Ef áhugasamir útgerðaraðilar finnast er stefnt að sigling 50 til 100 manna ferju gæti hafist í sumar. Ekki verður um bílferju að ræða. Í bókun bæjarráðs Akraneskaupstaðar kemur fram að gert…Lesa meira

true

Opið hús á 112 deginum

Á morgun, laugardaginn 11. febrúar, frá klukkan 12-15 verður opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjararsveitar á Kalmansvöllum 2 á Akranesi. Þar munu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn ásamt lögreglu og starfsfólki RKÍ vera á staðnum. Hægt verður að fá að skoða búnað og tæki og kynnast starfsemi þessara lífsnauðsynlegu viðbragðsaðila. Íbúar eru hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Tveir vestlenskir markverðir í U17

Tilkynnt hefur verið um landsliðshóp U17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Edinborg í Skotlandi vikuna 19.-25. febrúar næstkomandi. Í hópinn hafa verið valdar tvær ungar og efnilegar knattspyrnustúlkur af Vesturlandi, þær Birta Guðlaugsdóttir, markvörður Víkings Ó. og Katrín María Óskarsdóttir, markvörður ÍA. Hópurinn kemur saman föstudaginn 17. febrúar…Lesa meira

true

Hrútavinafélagið Hreðjar á faraldsfæti

Hrútavinafélagið Hreðjar á Hvanneyri brá sér nýverið á bæjaflakk. Fyrsti viðkomustaður var Sámsstaðir í Hvítársíðu, næst var farið að Sigmundarstöðum í Þverárhlíð og endað í Hrísum í Flókadal. Rölt var um fjárhús og spjallað við húsráðendur. Á ferðinni var hresst og áhugasamt ungt fólk úr öllum landshlutum en í hópnum voru 38 að meðtöldum bílstjóranum…Lesa meira

true

Regína Ásvaldsdóttir er nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

Borgarráð hefur samþykkt ráðningu Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra á Akranesi, í stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjarvíkurborgar. Greint er frá þessu á heimasíðu Reykjavíkurborgar en starfið var auglýst þann 7. janúar og sóttu 11 manns um stöðuna. “Það var samdóma álit valnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Regína Ásvaldsdóttir uppfyllti best umsækjenda þær…Lesa meira