Fréttir

true

Skagamenn vilja Vesturlandssamstarf

Meirihluti íbúa á Akranesi, eða 65%, vill halda áfram samstarfi við sveitarfélög á Vesturlandi frekar en að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Alls 35% eru á öndverðum meiði. Þetta er niðurstaða könnunar Gallup um viðhorf íbúa til samstarfs við önnur sveitarfélög. Spurt var: „Finnst þér að Akraneskaupstaður eigi að halda áfram samstarfi við…Lesa meira

true

Snæfellsbær fær 46,5 milljónir úr Fjarskiptasjóði

Úr Fjarskiptasjóði er sem kunnugt er úthlutað styrkjum til sveitarfélaga til ljósleiðaravæðingar í dreifbýlu utan markaðssvæða í gegnum verkefnið Ísland ljóstengt. Umsóknar- og úthlutunarferli vegna fyrirhugaðra framkvæmda sveitarfélaga landsins á árinu 2017 er langt komið. Á miðvikudag voru opnaðar samtals 146 styrkbeiðnir frá 34 sveitarfélögum og mat á þeim umsóknum liggur nú fyrir. Alls eiga…Lesa meira

true

Tóku þátt í Reykjavíkurleikunum í karate

Fimm keppendur frá Karatefélagi Akraness tóku þátt í Reykjavíkurleikunum,  WOW Reykjavik International Games 2017, sunnudaginn 29. janúar. Stóðu þau sig öll með prýði. Á meðfylgjandi mynd er Kristrún Bára Guðjónsdóttir lengst til hægri, en hún varð í 3. sæti í sinum aldursflokki í kata.Lesa meira

true

Stefna að sýningunni „Ræktun Vesturlands 2017“

Hrossaræktarsamband Vesturlands stefnir að því að halda Ræktunarsýningu Vesturlands 2017 í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi laugardaginn 25. mars nk. „Þau ræktunarbú á Vesturlandi sem hafa áhuga á að koma þar fram og kynna bú sín og gæðinga hafi samband í gegnum netfangið hrossvest@hrossvest.is og láti vita af áhuga. Einnig er leyfilegt að benda á góða…Lesa meira

true

Atvinnuleysi komið í neðstu mörk

Að meðaltali var atvinnuleysi í landinu 2,5% á lokaársfjórðungi liðins árs; 2,8% á höfuðborgarsvæðinu en 2,0% á landsbyggðinni. Í samantekt Hagstofunnar kemur fram að frá fjórða ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 8.400 á vinnumarkaði og hlutfallið jókst um 1,9 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 900 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells á Stjörnunni

Snæfell mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Garðabænum og skemmst er frá því að segja að Snæfell réði ferðinni frá upphafi til enda og sigraði að lokum örugglega, 54-71. Snæfell lék í leiknum með sorgarbönd á búningnum í minningu um Birgi Pétursson, ungan manns úr Stykkishólmi sem lést…Lesa meira

true

Áttundi sigur Skallagríms í röð

Skallagrímur mætti Haukum í 19. umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Hafnarfirði og þar kræktu Skallagrímskonur í áttunda sigurleikinn í röð þegar þær lögðu Hauka 55-61. Eru þær nú ósigraðar síðan í byrjun desembermánaðar og tróna á toppi deildarinnar. Skallagrímsliðið var heldur sterkara í upphafi leiks en Haukar náðu góðum…Lesa meira

true

Tíu valdir til þátttöku í Startup Tourism

Tíu viðskiptahugmyndir hafa verið valdar til þátttöku í tíu vikna viðskiptahraðli Startup Tourism en verkefnið er sérsniðið að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Því er ætlað að veita þeim faglega undirstöðu og hraða ferlinu sem þau fara í gegnum frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra. Á síðasta var eitt vestlenskt…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin hefst á föstudaginn

Fyrsta mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi föstudagskvöldið 3. febrúar. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið, sem etja kappi í sex greinum hestaíþrótta á fimm kvöldum nú í febrúar og mars. Húsið verður opnað klukkan 18.00 og hefst dagskrá með setningu kl. 18.30.…Lesa meira

true

Veitingahús risið við Hraunfossa

Eftir áramótin hófst bygging nýs veitingahúss við Hraunfossa í Borgarfirði og er húsið nú ríflega fokhelt. Það er fyrirtækið Hraunfossar-Barnafoss ehf. sem byggir en það er fjölskyldufyrirtæki í eigu Snorra Jóhannessonar og Jóhönnu Björnsdóttur á Augastöðum og Kristrúnar dóttur þeirra og Arnar Eyfjörð Arnarsonar á Laxeyri. Nýja veitingahúsið er 160 fermetrar með tengibyggingu við eldri…Lesa meira