Fréttir

true

Svekkjandi tap Skagakvenna á lokamínútunni

Skagakonur máttu sætta sig við afar svekkjandi 2:3 tap gegn Völsungi í 16. umferð Lengjudeildar kvenna í Akraneshöllinni í gær. Úrslitin réðust ekki fyrr en á lokamínútu leiksins þegar gestirnir skoruðu sigurmarkið. ÍA byrjaði leikinn af krafti og Alliyah Monica Rowe kom heimakonum yfir strax á 11. mínútu. Forystan entist þó ekki lengi því Auður…Lesa meira

true

Haukar of sterkir fyrir Víking í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík tapaði 1:4 fyrir toppliði Hauka þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 20. umferð 2. deildar karla í gær, laugardaginn 29. ágúst. Fátt var um fína drætti í fyrri hálfleik og lengi vel tókst hvorugu liðinu að finna leiðina í markið. Það breyttist á 42. mínútu þegar Ólafur Darri Sigurjónsson kom Haukum yfir og…Lesa meira

true

Skallagrímur þarf að snúa taflinu við í Borgarnesi

Skallagrímur tapaði 2:1 fyrir Stokkseyri í fyrri leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni 5. deildar karla í knattspyrnu á Stokkseyrarvelli í dag. Leikurinn var jafn og fjörugur en heimamenn tryggðu sér sigurinn með marki skömmu fyrir leikslok. Arilíus Óskarsson kom Stokkseyri yfir á 37. mínútu eftir mikla baráttu í fyrri hálfleik. Borgnesingar voru þó fljótir að…Lesa meira

true

Kári áfram í harðri baráttu um annað sætið

Kári vann mikilvægan 2-0 sigur í 20. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í gær. Sigurinn hélt Káramönnum inni í harðri baráttu um annað sæti deildarinnar þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Tómas Týr Tómasson kom Kára yfir á 17. mínútu og þannig stóðu leikar lengst af. Sigurjón Logi Bergþórsson innsiglaði síðan sigurinn…Lesa meira

true

Tvö sveitarfélög á Vesturlandi taka þátt í prófun á rafrænni kjörskrá

Þjóðskrá mun prófa rafræna kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag, 29. ágúst. Öllum sveitarfélögum landsins var boðin þátttaka í prófunum og 20 sveitarfélag þáðu boðið. Hér á Vesturlandi eru tvö sveitarfélög sem prófa þetta og er það Eyja- og Miklaholtshreppur og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Í kjördeildum þeirra sveitarfélaga sem taka þátt verður tölva á staðnum til að…Lesa meira

true

Hátíðarmessa að lokinni endurbyggingu Dagverðarneskirkju

Dagverðarneskirkja í Dölum var reist árið 1934. Undanfarin ár hefur heimafólk og velunnarar kirkjunnar unnið að stórfelldum endurbótum á kirkjunni og í blíðskaparveðri sunnudaginn 16. ágúst var fyrsta guðsþjónustan haldin í kirkjunni og jafnframt fagnað uppgerð kirkjunnar. Dagverðarneskirkja tilheyrir nú Staðarfellssókn en var áður sóknarkirkja Dagverðarnessóknar. Bára Sigurðardóttir í Lyngbrekku er formaður sóknarnefndar Staðarfellssóknar og…Lesa meira

true

Tvímælalaust besti skólinn á landinu

Þær Hekla, Hörn og Hugrún eru nýnemar í Verslunarskóla Íslands sem í dag er í nýnemaferð á Akranesi. Hluti af ferðinni er keppni þar sem hópar þurfa að leysa ýmsar þrautir og safna stigum. Í hverjum bekk eru 25-30 nemendur og þrír í hverjum hóp. Meðal verkefna var að komast í fréttirnar. Það blasti því…Lesa meira

true

Ný stjórn Faxaflóahafna tekin til starfa

Ný stjórn Faxaflóahafna hefur nú tekið til starfa og hélt sinn fyrsta stjórnarfund í hádeginu í dag. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda félagsins sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Brynjar Níelsson borgarfulltrúi er nýr formaður stjórnar en fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir. Páll S. Brynjarsson er sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar…Lesa meira

true

Omnis Verslun á Akranesi verður lokað

Ákveðið hefur verið að loka Omnis Verslun við Dalbraut á Akranesi. Ingþór Bergmann Þórhallsson eigandi segir mikinn samdrátt í sölu ástæða þessarar ákvörðunar en útslagið hafi þó gert að Síminn (Ásar hf.) hafi sagt upp þjónustusamningi við verslunina, en sú þjónusta hafi frá upphafi verið ákveðin kjölfesta í rekstrinum. Búið er að segja upp húsaleigu…Lesa meira

true

Rödd Agnesar fær að heyrast í Norska húsinu

Guðrún Gyða Ölvisdóttir verður með upplestur úr nýútkominni bók sinni Agnes, áföll og valdbeiting í Norska húsinu í Stykkishólmi í dag, 28. ágúst kl. 15. Í bókinni nálgast Guðrún Gyða sögu Agnesar Magnúsdóttur út frá áföllum, valdbeitingu og stöðu kvenna á 19. öld. Agnes var 35 ára þegar hún var tekin af lífi á Þrístöpum…Lesa meira