
Rödd Agnesar fær að heyrast í Norska húsinu
Guðrún Gyða Ölvisdóttir verður með upplestur úr nýútkominni bók sinni Agnes, áföll og valdbeiting í Norska húsinu í Stykkishólmi í dag, 28. ágúst kl. 15. Í bókinni nálgast Guðrún Gyða sögu Agnesar Magnúsdóttur út frá áföllum, valdbeitingu og stöðu kvenna á 19. öld. Agnes var 35 ára þegar hún var tekin af lífi á Þrístöpum árið 1830, í síðustu aftöku Íslandssögunnar. Með atómljóðum fær Agnes sjálf rödd og segir frá líðan sinni, óskum og draumum. Samhliða er fjallað á fræðilegan hátt um áföll, valdbeitingu og þau sár sem slík reynsla getur skilið eftir sig.
Birna G. Hjaltadóttir þjóðfræðingur segir bókina skrifaða af mikilli næmni og ástúð. Hún bendir á að starfsreynsla höfundar innan heilbrigðiskerfisins gefi henni góðan skilning á tilfinningum fólks sem orðið hefur fyrir erfiðleikum og áföllum. Þá segir Birna umfjöllun bókarinnar um áfallastreituröskun sem afleiðingu valdbeitingar sérstaklega athyglisverða.
Guðrún Gyða er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur meðal annars stundað nám í geðhjúkrun og lýðheilsufræði. Hún starfaði einnig með áfallateymi Rauða kross Íslands um árabil. Samhliða störfum sínum hefur hún lagt rækt við myndlist og ljóðagerð. Allir eru velkomnir á upplesturinn og verða léttar veitingar í boði.