
Tvímælalaust besti skólinn á landinu
Þær Hekla, Hörn og Hugrún eru nýnemar í Verslunarskóla Íslands sem í dag er í nýnemaferð á Akranesi. Hluti af ferðinni er keppni þar sem hópar þurfa að leysa ýmsar þrautir og safna stigum. Í hverjum bekk eru 25-30 nemendur og þrír í hverjum hóp. Meðal verkefna var að komast í fréttirnar. Það blasti því við að til að safna mörgum stigum væri gott að komast í fréttirnar á Skessuhorni, fréttaveitu Vesturlands. Þær stöllur vildu koma því að að Versló væri tvímælalaust besti skóli landsins (það gaf 100 aukastig ef það kæmi fram)!