Fréttir

true

Alvarlegur íbúðaskortur á fasteignamarkaði

Skessuhorn fjallaði nú í vikunni um skort á íbúðum á almennum fasteignamarkaði á suðvesturhorni landsins. Sagt var frá hvernig fjárfestar hafa „hamstrað“ fasteignir á almennum markaði og greitt jafnvel yfirverð í samkeppni við almenna fasteignakaupendur. Á kynningarfundi sem Íbúðalánasjóður hélt í morgun kom fram að einungis þúsund fasteignir eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu, en áætlað…Lesa meira

true

Von er á Engey RE til lands fyrir lok mánaðarins

„Þetta er glæsilegt skip og nú verður stefnan tekin til Íslands,“ segir Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Engey RE á vef fyrirtækisins. Snjókoma í Tyrklandi hefur tafið lítið eitt fyrir upprunalegri áætlun um heimferð skipsins, en það er væntanlegt fyrir lok mánaðarins til Reykjavíkur. Þaðan verður Engey svo siglt á Akranes þar sem millidekks- og lestarbúnaður,…Lesa meira

true

Allt hægt með góðu skipulagi og samviskusemi

Margrét Olsen var með hæstu meðaleinkunn stúdenta sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga á haustönn, en útskrifað var frá skólanum skömmu fyrir jól. Margrét var í fríi með fjölskyldunni í Flórída þegar Skessuhorn hafði samband við hana. „Við fórum rétt fyrir áramót og komum heim 11. janúar [í dag]. Við erum bara búin að liggja hérna…Lesa meira

true

Rafrettuverslun opnuð á Akranesi

Hjónin Sæmundur Steindór Magnússon og Guðrún Katrín Sandholt opnuðu á gamlársdag verslunina MyVape Akranes að Vesturgötu 162 á Akranesi. Þar selja þau rafrettur og vökva í þær. Sjálf hættu þau reykingum og tóku upp rafrettuna í vetur og nú vilja þau aðstoða reykingafólk við að gera slíkt hið sama. „Við hjónin hættum að reykja fyrir…Lesa meira

true

Skallagrímur var skrefinu undan Snæfelli allan leikinn

Sannkallaður Vesturlandsslagur var háður í Domino‘s deild kvenna í gær, en þá mættust Snæfell og Skallagrímur í Stykkishólmi. Liðin hafa átt prýðilegu gengi að fagna í Íslandsmótinu það sem af er, voru fyrir leikinn jöfn að stigum í 2. og 3. sæti deildarinnar. Því var fyrirfram búist við miklum spennuleik í Stykkishólmi en sú varð…Lesa meira

true

Ef notuð er myndlíking er útvíkkun núll í fæðingu nýs samnings

„Gríðarlegur fjöldi sjómanna hefur haft samband við mig, eðlilega, til að spyrja hvernig „fæðing“ á nýjum kjarasamningi við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gangi,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness en hann á jafnframt sæti í samninganefnd fyrir hönd sjómanna. „Ef við tölum um „fæðingu“ og notum fræðin sem ljósmæður nota þá má segja að útvíkkun…Lesa meira

true

Óþekktur maður býður skólabörnum Nýja-Testamentið

Á undanförnum vikum hefur nokkrum sinnum orðið vart við karlmann í nágrenni Grundaskóla á Akranesi sem í algjöru heimildaleysi býður nemendum skólans bækur að gjöf. „Maður þessi hefur nálgast nemendur í grennd við skólann og á skólalóðinni og boðið þeim að þiggja bækur. Um er að ræða hávaxinn eldri mann með hvítt hár og sítt…Lesa meira

true

„Stígamót á staðinn“ í Borgarnesi

Reglubundin þjónusta Stígamóta á Vesturlandi hefst í febrúarmánuði. Um er að ræða starfsemi þar sem félagsráðgjafi á vegum samtakanna mun veita ráðgjöf í Borgarnesi hálfsmánaðarlega. Í næstu viku munu samtökin halda sjö kynningarfundi víðsvegar um landshlutann. „Þar ætlum við að bjóða bæði upp á opna fagfundi og lokaða fundi með mér og Guðrúnu Jónsdóttur. Á…Lesa meira

true

Fréttaskýring: Almenningur keppir við leigufélög um fasteignir

Skortur er á íbúðarhúsnæði víða um land, en mestur þó á höfuðborgarsvæðinu þar sem fasteignaverð hefur náð nýjum hæðum. Lauslega er áætlað að enn skorti um sex þúsund fasteignir einungis á höfuðborgarsvæðinu til að markaðurinn næði jafnvægi á nýjan leik. Einkum er þetta ástand rakið til þess að of lítið hefur verið byggt eftir hrun…Lesa meira

true

Ný lög um heimagistingu tóku gildi um áramótin

Síðastliðið vor samþykkti Alþingi breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, frá því 2007. Með breytingunum nú er einstaklingum heimilt að leigja út heimili sitt og aðra fasteign, svo sem sumarhús, sem viðkomandi hefur til persónulegra nota, í allt að 90 daga á ári án þess að þurfa að sækja um mörg, flókin eða…Lesa meira