Fréttir

true

Lífeyrisskuldbingar Höfða fyrsti samningur nýs fjármálaráðherra

Í dag var skrifað undir í fjármálaráðuneytinu samning varðandi útfærslu á yfirtöku ríkissjóðs á lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimilisins Höfða á Akranesi, en það er eitt þeirra heimila sem rekið hefur verið með ábyrgð sveitarfélaga. Stærsta einstaka lífeyrisskuldbindingin hér á landi var á Akranesi þar sem allar lífeyrisskuldbindingar vegna starfsfólks Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Höfða voru á ábyrgð Akraneskaupstaðar.…Lesa meira

true

Skautasvell við Grundaskóla

Eins og kynnt var í haust í Skessuhorni hefur verið í undirbúningi að gera skautasvell á lóð Grundaskóla á Akranesi. Að frumkvæði hollvina Grundaskóla var útbúið hringlaga svæði sem kallast Krúsin, sem beið þess eins og frysti í veðri, en sú var einmitt raunin í vikunni. Þegar ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni í morgun voru…Lesa meira

true

Lagt til að óháður aðili fari yfir lagalega stöðu húsbygginga

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í gær lagði Guðveig Eyglóardóttir, oddviti minnihlutans í sveitarstjórn, fram tillögu þess efnis að Borgarbyggð fái óháðan aðila til að fara yfir feril, málsmeðferð og lagalega stöðu vegna húsbygginga við Borgarbrautar 57-59 í Borgarnesi. Eins og kunnugt er hafa framkvæmdir verið stöðvaðar í kjölfar úrskurðar Úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál…Lesa meira

true

Borgarbyggð kaupir snjótönn og saltkassa

Keypt hefur verið snjótönn til að festa framan á bíl áhaldahúss Borgarbyggðar og einnig verið saltkassi á pall bílsins. Markmiðið er að bæta snjómokstur og hálkuvörn í sveitarfélaginu, ekki síst í þéttbýliskjörnum. „Með þessu verður unnt að bregðast hraðar og betur við þegar ryðja þarf burt snjó og hálkuverja plön og gangstéttir við stofnanir sveitarfélagsins,…Lesa meira

true

Fóru með Íslandsmeistarana í framlengingu

Skallagrímur heimsótti Íslandsmeistara KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Fyrirfram bjuggust flestir við sigri KR og það nokkuð þægilegum en sú varð hreint ekki raunin. Íslandsmeistararnir þurftu framlengingu til að leggja Borgnesinga í leik þar sem Skallagrímur kom alltaf til baka og Sigtryggur Arnar Björnsson og Flenard Whitfield fóru á kostum. Lokatölur…Lesa meira

true

Sýning um samtímann í Safnahúsinu

Á morgun, laugardag, verður opnuð ný sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi.  Þetta er ljósmyndasýning með verkum eftir ellefu myndhöfunda. Allt eru það áhugaljósmyndarar og myndefnið er umhverfi og mannlíf í Borgarnesi á árinu 2016.  Tilefnið er að í ár (2017) á bærinn 150 ára afmæli og eru myndirnar valdar úr innsendu efni í ljósmyndasamkeppni sem…Lesa meira

true

Vitundarvakning hafin um ungt fólk og krabbamein

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, hóf í vikunni sérstakt átak til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein. Félagsmenn Krafts eru krabbameinsgreindir einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára og aðstandendur. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á aðstæðum þessa fólks. Auk þess verður leitað til almennings að…Lesa meira

true

Þrjár hleðslustöðvar fyrir sumarið

Ef fer sem horfir verða komnar þrjár hleðslustöðvar fyrir rafbíla í Reykhólahreppi á vormánuðum. Í Skessuhorni hefur áður verið greint frá tveimur væntanlegum hleðslustöðvum, sem enn hefur ekki verið fundinn staður í sveitarfélaginu. Til viðbótar þessum tveimur stöðvum var greint frá því á Reykhólavefnum í gær að Árni Sigurpálsson á Hótel Bjarkalundi keypt hleðslustöð sem…Lesa meira

true

Ný stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins:

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra hefur skipað Framleiðnisjóði landbúnaðarins stjórn til næstu fjögurra ára frá 16. janúar að telja. Stjórn sjóðsins er þannig skipuð: Elín Aradóttir formaður Hólabaki, Eiríkur Blöndal Jaðri, Jóhannes Ríkharðsson Brúnastöðum, Guðný Helga Björnsdóttir Bessastöðum og Sveinn Rúnar Ragnarsson Akurnesi 1, bæði tilnefnd af Bændasamtökum Íslands. Varamenn: Hanna Dóra Hólm Másdóttir,  Sigríður Jóhannesdóttir Gunnarsstöðum,…Lesa meira

true

Halda dagvinnulaunum í verkfalli sjómanna

Í tilefni frétta að undanförnu telur Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, rétt að halda því til haga að félagið hefur haldið ráðningarsambandi við allt sitt starfsfólk. „Fiskvinnslufólk hjá HB Granda hefur því haldið dagvinnulaunum sínum frá því að verkfall sjómanna hófst. Hjá félaginu starfa um 400 manns við fiskvinnslustörf í Reykjavík, á Akranesi og á…Lesa meira