Fréttir

true

Farið yfir laxveiðina á Vesturlandi

Liðið sumar mun seint verða kallað metsumar í laxveiðinni. En víðast fengu menn í soðið og það er fyrir mestu. Smálaxinn hefði mátt láta sjá meira en raun bar vitni. Í tilefni þess að veiðum er nú lokið er í Skessuhorni sem kom út í dag farið yfir lokatölu úr ánum á Vesturlandi.  Lesa meira

true

Líklegt að átta framboð verði í Norðvesturkjördæmi

Eftir rúmar fjórar vikur verður kosið til Alþingis Íslendinga. Stjórnmálaflokkarnir eru nú margir komnir vel á veg við að setja saman lista og nokkrir búnir. Nokkuð misjafnt er hvaða aðferðafræði er beit við það, svo sem forval, uppstillingarnefnd, rafrænt prófkjör, tvöföld kjördæmisþing eða jafnvel að listar frá kosningunum 2016 eru endurnýttir að mestu eða öllu…Lesa meira

true

Lilja Rafney og Bjarni leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi

Fundur í kjördæmisráði VG í Norðvesturkjördæmi stendur nú yfir á Hótel Bjarkalundi í Reykhólasveit. Þar var samþykkt rétt í þessu tillaga kjörnefndar um framboðslista vegna komandi alþingiskosninga. Sömu tvö leiða listann og fyrir kosningarnar 2016; Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður á Suðureyri og Bjarni Jónsson fiskifræðingur á Sauðárkróki. Rúnar Gíslason háskólanemi færist nú ofar á listann…Lesa meira

true

Sauðamessa verður á laugardaginn

Næstkomandi laugardag, 7. október, verður Sauðamessa haldin hátíðleg í Borgarnesi. Er þetta fjórtánda árið í röð sem hátíðin fer fram og að vanda verður fjölbreytt dagskrá, bæði fastir liðir sem nýir. Fyrir árrisula sauði sem vilja byrja daginn á smá átökum verður Gunna Dan með sauðaspinning í íþróttamiðstöðinni klukkan 10. „Þetta stefnir allt í þrusugóða…Lesa meira

true

Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

Spá formanna, þjálfara og fyrirliða fyrir Domino‘s deild karla og kvenna í körfuknattleik og 1. deild karla og kvenna var kynnt rétt í þessu á fundi í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Skallagrími er spáð 4. sæti Domino‘s deildar kvenna en Snæfelli 5. sæti. Ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur er spáð efsta sætinu. KR-ingum er spáð efsta…Lesa meira

true

Björt framtíð kynnti sex efstu frambjóðendur í kjördæmunum

Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti í gær sex efstu á framboðslistum í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar í lok þessa mánaðar. Í Norðvesturkjördæmi mun skipa efsta sæti listans Guðlaug Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar. Í öðru sæti verður Kristín Sigurgeirsdóttir skólaritari í Tónlistarskóla Akraness, Elín Matthildur Kristinsdóttir meistaranemi í þriðja, Gunnsteinn Sigurðsson…Lesa meira

true

Nýtt greiðslufyrirkomulag í dósamóttöku Öldunnar

Nýtt greiðslufyrirkomulag hefur verið tekið upp dósamóttöku í Öldunni, iðjunni í Brákarey í Borgarnesi. Í stað þess að fá grænu miðana getur fólk fengið greitt fyrir drykkjarumbúðir beint inn á kortið sitt. Eftir að búið er að telja flöskur og dósir fær fólk miða með strikamerki. Miðinn er svo skannaður inn í vél sem staðsett…Lesa meira

true

Vírus í tómatrækt ekki skaðlegur fólki

Vírussýking hefur verið greind í íslenskri tómatarækt og smit verið staðfest á þremur býlum. „Ekki er ástæða til að ætla að vírusinn breiðist út fyrir gróðurhúsarækt tómata og er hann ekki skaðlegur mönnum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Vírusinn ber nafnið Pepino mósaík og er af ættkvísl Potexvírusa. Uppruna hans má rekja til Perú árið…Lesa meira

true

Afkoma Borgarbyggðar betri en áætlað var

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nýverið var lagt fram sex mánaða uppgjör fyrir rekstur, sjóðstreymi og efnahag sveitarfélagsins. „Almennt má segja að rekstur Borgarbyggðar hafi verið heldur betri en áætlað var í fjárhagsáætlun með þegar samþykktum viðaukum. Tekjur samstæðunnar (A+B) eru 1.763 m.kr. eða um 17 m.kr. lægri en áætlað var. Frávikið er fyrst og fremst…Lesa meira

true

Endurhæfing fyrir ungt fólk með geðraskanir

Þjónusta Hugarafls á sviði starfsendurhæfingar, einkum fyrir ungt fólk með geðraskanir, verður aukin til muna með nýjum þjónustusamingi milli samtakanna og Vinnumálastofnunar sem undirritaður var í síðustu viku. Markmiðið með samningnum er að veita þeim sem Vinnumálastofnun, Tryggingastofnun ríkisins, heilbrigðisstofnanir eða aðrir viðurkenndir aðilar svo sem félagsþjónusta sveitarfélaga vísa til Hugarafls, aðstoð með sértækum endurhæfingaraðgerðum…Lesa meira