Fréttir

true

Næstu skref til heilsueflingar í Borgarbyggð

Út er komin áfangaskýrsla um heilsueflingu í Borgarbyggð en gengið var frá samningi við embætti landlæknis síðastliðið vor um þátttöku Borgarbyggðar í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verkefninu er skipt upp í fjóra áhersluþætti, þ.e. næringu og mataræði, hreyfingu og útivist, líðan og geðrækt og lífsgæði. Að mati þátttakenda á íbúaþinginu í vor liggja tækifærin og lausnirnar…Lesa meira

true

Baráttufundurinn „Guð blessi heimilin“ haldinn í Háskólabíói

Tvö verkalýðsfélög; Verkalýðsfélag Akraness og Verslunarmannafélag Reykjavíkur, hafa ákveðið að boða í sameiningu til opins fundar í Háskólabíói í Reykjavík næstkomandi laugardag klukkan 14:00. „Á fundinum verður fjallað um okurvexti og verðtryggingu en þar munu flytja erindi, auk formanna VR og VLFA, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Ólafur Margeirsson doktor í hagfræði. Fulltrúi frá Hagsmunasatökum heimilanna…Lesa meira

true

Vinnueftirlitið heldur ráðstefnu í Borgarnesi

Vinnueftirlitið stendur fyrir vinnuverndarráðstefnu sem ber yfirskriftina „Vinnuvernd alla ævi – Er hægt að eldast í ferðaþjónustu?“ Verður hún haldin á Hótel Borgarnesi föstudaginn 6. október kl. 13-16. Þar verður sjónum beint að mikilvægi vinnuverndar í ferðaþjónustu og áhrifum vinnuumhverfisins á starfsmenn. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum opinn án endurgjalds en skráning er skilyrði. Fjölbreyttur…Lesa meira

true

Keflavík er meistari meistaranna

Skallagrímur mætti Keflavík þegar leikið var um meistara meistaranna í körfuknattleik kvenna í gær. Leikurinn fór fram í Keflavík. Heimaliðið vann tvöfalt á síðasta tímabili en Skallagrímur hlaut silfurverðlaun í bikarkeppninni. Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur höfðu undirtökin í leiknum frá því snemma í fyrsta leikhluta. Heimakonur slökuðu hvergi á og héldu Skallagrímskonum í skefjum allan…Lesa meira

true

Lionsmenn færðu grunnskólanum hefilbekki

Í síðustu viku afhenti Lionsklúbbur Ólafsvíkur, Grunnskóla Snæfellsbæjar formlega að gjöf sex hefilbekki sem klúbburinn gaf skólanum fyrr á þessu ári. Hefilbekkirnir munu nýtast skólanum vel og eru nemendur byrjaðir að nota þá. Í sumar var aðstaða til smíðakennslu í Grunnskóla Snæfellsbæjar stórlega bætt. Kennslurýmið var endurskipulagt, málað og keyptir nýir hefilbekkir og eru þeir…Lesa meira

true

Víkingur Ó. samferða ÍA niður

Lokaumferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu fór fram á laugardag. Á Akranesi mættust ÍA og Víkingur Ó. í leik þar sem Ólafsvíkingar höfðu allt að vinna en engu að tapa. Þeir þurtu á sigri að halda til að bjarga sér frá falli, en um leið að treysta á að ÍBV sigraði ekki KA í Vestmannaeyjum.…Lesa meira

true

Dögun mun ekki bjóða fram fyrir komandi kosningar

Stjórnmálaaflið Dögun, sem bauð fram fyrir síðustu alþingiskosningar, hefur ákveðið að bjóða ekki fram á landsvísu í komandi kosningum. „Félagsmenn Dögunar í einstökum kjördæmum hafa frjálsar hendur um framboð undir listabókstaf flokksins. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu mun Framkvæmdaráð Dögunar vera opið fyrir því að ræða um samstarf á grundvelli málefna Dögunar – við þá sem…Lesa meira

true

Alþýðufylkingin býður fram í fjórum kjördæmum af sex

Stjórnmálaaflið Alþýðufylkingin hefur ákveðið að bjóða fram í fjórum kjördæmum af sex. Hún mun ekki bjóða fram lista í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi. „Eins og gefur að skilja er erfitt fyrir flokk, sem hefur ekki launaða starfsmenn, að koma saman framboðslistum þegar fyrirvarinn er jafn stuttur og nú,“ segir í tilkynningu frá Alþýðufylkingunni sem mun kynna…Lesa meira

true

Þátttaka í íþróttum besta leiðin til aðlögunar fyrir börn innflytjenda

UMFÍ í samstarfi við ÍSÍ og KSÍ vinna nú að verkefni sem hefur það markmið að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi getur verið jákvæð leið til þess að aðlagast íslensku samfélagi og til þess að rjúfa félagslega einangrun fólks. Verkefnið felur…Lesa meira

true

Fimm karlar og Inga Sæland eru oddvitaefni Flokks fólksins

Flokkur fólksins kynnti á laugardaginn væntanlega oddvita framboðslista í öllum kjördæmum fyrir komandi alþingiskosningar. Inga Sæland formaður flokksins mun leiða listann í Reykjavíkurkjördæmi suður, en Ólafur Ísleifsson hagfræðidoktor í Reykjavík norður. Í Norðvesturkjördæmi mun Magnús Þór Hafsteinsson rithöfundur og fyrrverandi þingmaður fyrir Frjálslynda flokkinn skipa efsta sætið. Í Norðausturkjördæmi mun séra Halldór Gunnarsson verða í…Lesa meira