Í síðustu viku lagði formaður og framkvæmdastjóri Viðreisnar land undir fót og heimsóttu Snæfellsnes. Hófu þar með undirbúning fyrir kosningaslaginn sem framundan er. Benedikt Jóhannesson og Gylfi Ólafsson aðstoðarmaður hans voru á ferðinni og kíktu meðal annars í heimsókn í fiskvinnslu G.Run hf í Grundarfirði. Þar tók Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri á móti þeim og kynnti fyrir gestunum tilvonandi stórframkvæmdir við byggingu nýs fiskvinnsluhúss. Í leiðinni lét framkvæmdastjórinn nokkur orð falla um skattlagningu sjávarútvegsins, á tandurhreinni íslensku að sjálfsögðu. Ljósm. tfk.

Líklegt að átta framboð verði í Norðvesturkjördæmi

Þessi grein er aðeins aðgengileg áskrifendum
Líklegt að átta framboð verði í Norðvesturkjördæmi - Skessuhorn