Fréttir

true

Karfan brátt að hefjast

Næstkomandi sunnudagur markar upphaf Íslandsmótsins í körfubolta, en þá verður leikið um titilinn „meistari meistaranna“. Skallagrímur mætir Keflavík í kvennaflokki, en síðarnefnda liðið vann tvöfalt á síðasta tímabili, hampaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum. Skallagrímur mætti Keflavík í úrslitaleik bikarkeppninnar og liðin mætast því á sunnudaginn í upphafi keppnistímabilsins. Í karlaflokki mætast KR og Þór frá…Lesa meira

true

„Það geta allir eldað ef þeim er bara kennt það“

Rúnar Marvinsson var ungur þegar hann byrjaði að grúska í matargerð og segir að í dag sé fátt, ef eitthvað, sem gæti komið honum á óvart í þeim efnum. „Amma mín var kokkur í mötuneyti fyrir verkamenn og hún tók mig stundum með sér í vinnuna. Þá byrjaði ég svona að væflast um eldhúsið og…Lesa meira

true

Íbúðarhús úr krosslímdum viði risið á Akranesi

Um þessar mundir er í byggingu fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi, svo vitað sé, sem byggt er alfarið úr krosslímdum timbureiningum. Um er að ræða parhús á tveimur hæðum við Seljuskóga á Akranesi. Hvor íbúðin um sig rétt tæpir 200 fermetrar að stærð. Það eru þeir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson sem byggja húsið.…Lesa meira

true

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í NV leggur til óbreyttan framboðslista

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi undirbýr kosningar 28. október næstkomandi líkt og aðrir flokkar og framboð sem hyggjast bjóða fram. Flokkurinn á nú þrjá þingmenn, þau Harald Benediktsson, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Teit Björn Einarsson. Kjördæmisráð flokksins í NV kjördæmi leggur til að sami listi verði boðinn fram og fyrir réttu ári. Í bréfi til flokksbundinna…Lesa meira

true

Vísitala neysluverðs hækkar þar sem húsnæðisliðurinn er hafður með

Samkvæmt samantekt Hagstofunnar er vísitala neysluverðs í september á þessu ári 444,6 stig og hækkar um 0,14% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðisliðar er hins vegar 383,7 stig og lækkar um 0,21% frá ágúst 2017. Þetta þýðir að lán heimila og fyrirtækja hækka vegna þess að húsnæði í landinu hefur hækkað í verði. Kostnaður…Lesa meira

true

Veraldarsigling Jóns Eggertssonar á prent

Í næstu viku, fimmtudaginn 5. október, er væntanleg úr prentun bókin „Leiðin frá Langanesi – suður í höf og heim aftur, veraldarsigling Jóns Eggertssonar.“ Sölvi Sveinsson skráði. „Við systkinin erum að gefa út bók um pabba okkar Jón Eggertsson, læknisson og fyrrverandi kaupmann í Borgarnesi. Bókin fjallar um æskuárin hans á Þórshöfn, veraldarsiglingar í 14…Lesa meira

true

Sigurður Orri býður sig fram í oddvitasæti Samfylkingarinnar

Sigurður Orri Kristjánsson hefur lýst yfir framboði til 1. sætis á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Framboð hans er því gegn sitjandi þingmanni, Guðjóni S Brjánssyni. Sigurður Orri er 29 ára og kemur frá Stykkishólmi og Hólmavík. „Ég lít á það sem nauðsyn að Samfylkingin verði að styrkja sig í kjördæminu fyrir komandi kosningar. Ég tel…Lesa meira

true

Fjölgun á tjaldstæðin en sundlaugargestir álíka margir

Íbúar Snæfellsbæjar hafa ekki farið varhluta af auknum ferðamannastraumi til landsins, frekar en aðrir landsmenn. Mikil fjölgun var á tjaldstæðunum í Snæfellsbæ á milli ára. Í því samhengi má nefna að í maí árið 2016 komu 380 gestir en í ár voru þeir 1145. Í júní árið 2016 komu 2396 gestir en á sama tíma…Lesa meira

true

Búið að malbika fyrsta áfanga Vesturgötu

Endurgerð Vesturgötu á Akranesi, milli Stillholts og Merkigerðis, hefur verið eitt stærsta verkefni Akraneskaupstaðar á þessu ári. Vegna umfangs verksins var því skipt upp í tvo áfanga en er komið langt á leið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar. Malbikun fyrsta áfanga lauk síðastliðinn mánudag, 25. september og áætlað er að…Lesa meira

true

Afmælishátíð og stækkun Leikskólans í Stykkishólmi

Laugardaginn 7. október verður haldin afmælishátíð í Leikskólanum í Stykkishólmi en þann dag verða 60 ár liðin frá því skólinn var fyrst opnaður. Hátíðin hefst klukkan 13 og áætlað er að henni verði lokið kl 16. „Það verður mikil hátíðardagskrá og eru allir velkomnir, þá munu forseti Íslands og forsetafrú koma við og flytja ávarp…Lesa meira