Fréttir

true

Hlutur ferðaþjónustu eykst

Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu nam 6,7% árið 2015 en til samanburðar var þetta hlutfall 5,6% árið 2014 og 4,9% árið 2013. Í frétt Hagstofunnar kemur fram að vaxtarhraði ferðaþjónustunnar, mældur sem aukning í hlutdeild landsframleiðslu milli ára, hefur aldrei mælst meiri en árið 2015. Sé horft aftur til ársins 2011 hefur vöxturinn verið örari með…Lesa meira

true

VG með uppstillingu í NV kjördæmi

Kjördæmisráð VG í Norðvesturkjördæmi kom saman til fundar í gær og ákvað að skipa fimm manna kjörnefnd til að stilla upp lista fyrir kosningarnar 28. október nk. Formaður kjörnefndar er Ragnar Frank Kristjánsson. „Kjörnefndin auglýsir hér með eftir þeim sem hafa áhuga á að taka sæti á lista en einnig má senda inn uppástungur. Allar…Lesa meira

true

Arnar Már framlengir til tveggja ára

Arnar Már Guðjónsson miðjumaður hefur endurnýjað samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA til næstu tveggja ára og gildir hann út 2019. Arnar Már er þrítugur og hefur spilað stórt hlutverk á miðju Skagamanna síðustu árin. Arnar, sem er uppalinn hjá ÍA, hefur spilað 165 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 31 mark. „Ég hef mikla…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri við fjöll í kvöld

Seint í kvöld er spáð suðaustan stormi sunnantil á landinu þegar skil lægðar fara hratt yfir landið. Reikna má með vindhviðum allt að 35 m/s undir Eyjafjöllum eftir kl. 21 og fram yfir miðnætti.  Einnig verður um tíma seint í kvöld hvasst á veginum við Hafnarfjall.Lesa meira

true

Uppstillingarnefnd kallar eftir framboðum

Samfylkingin í Norðvesturkjödæmi hélt kjördæmisþing á Akranesi síðastliðinn laugardag, eins og fram kom í frétt hér á vefnum í gær. Þar var ákveðið að kjósa um fjögur efstu sætin á listanum á auknu kjördæmisþingi sem haldið verður sunnudaginn 1. október á Hótel Bjarkalundi. Jafnframt verður lögð fram tillaga uppstillingarnefndar um þau sæti á framboðslistanum sem…Lesa meira

true

ÍA og Víkingur R. skildu jöfn

ÍA og Víkingur R. mættust í næstsíðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli í Reykjavík og lauk með markalausu jafntefli. Nokkur haustbragur var á leiknum, Skagamenn voru fallnir áður en leikurinn hófst og heimamenn svo gott sem hólpnir. Bar leikurinn þess merki að lítið væri í húfi fyrir…Lesa meira

true

Víkingur á enn von fyrir lokaumferðina

Víkingur Ó. er enn í fallsæti eftir leiki helgarinnar í næstsíðustu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Víkingur tók á móti FH í Ólafsvík á sunnudaginn og lauk leiknum með jafntefli, 1-1. Heimamenn fengu fyrsta alvöru færi leiksins. Þorsteinn Már Ragnarsson tók boltann með sér eftir langa sendingu og sótti einn gegn varnarmanni. Hann komst…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin áttust við í Útsvari

Síðastliðið föstudagskvöld áttust fulltrúar tveggja sveitarfélaga við í Útsvari, nýrri útgáfu af spurningaþættinum í Ríkissjónvarpinu. Var þetta önnur viðureignin í þessari nýju þáttaröð. Þannig vildi til að bæði Vesturlandsliðin sem keppa í vetur drógust saman; Akranes og Snæfellsbær. Lið Akraness komst alla leið í úrslitaþáttinn síðasta vetur og tefldi fram vönu fólki; Vilborgu Þórunni Guðbjartsdóttur,…Lesa meira

true

Grunnskólabörn í Borgarnesi læra slökun og vellíðan

Nú í haust hófst í fyrsta sinn í Grunnskólanum í Borgarnesi kennsla í slökun og vellíðan. Er það Elín Matthildur Kristinsdóttir sem hefur umsjón með kennslunni. Fyrirkomulag kennslunnar er þannig að allir árgangar skólans hafa aðgang að slökun einn tíma á viku. „Í upphafi er kynningartími og þá koma nemendur í litlum hópum, ekki fleiri…Lesa meira

true

Samfylkingin í NV mun kjósa um efstu sætin

Samfylkingin í Norðvesturkjödæmi hélt kjördæmisþing á Akranesi í gær. Þar var ákveðið að kjósa um fjögur efstu sætin á listanum á auknu kjördæmisþingi sem haldið verður sunnudaginn 1. október. Ekki liggur enn fyrir hvar þingið verður haldið, en stefnd að það verði miðsvæðis í þessu landstóra kjördæmi. Eini þingmaður flokksins í kjördæminu, Guðjón Brjánsson, gefur…Lesa meira