Fréttir

true

Matarhefð speglar sérkenni hverrar þjóðar

„Við njótum þeirrar gæfu að búa við matarauð sem byggir á dýrmætri frumkvöðulshefð sem gengið hefur kynslóða á milli,” skrifar Brynja Laxdal verkefnisstjóri Matarauðs Íslands í grein í Skessuhorni í dag. Með blaði vikunnar fylgir 36 síðna sérblað sem tileinkað er þessu efni, matarauð Vesturlands. En um verkefnið á landsvísu skrifar Brynja: “Tilgangur Matarauðs Íslands…Lesa meira

true

Briddsarar hefja vetrarstarf sitt

Borgfirskir briddsspilarar hófu vetrarstarf félags síns með formlegum hætti að kveldi síðasta mánudags. Til leiks mættu tíu pör og einum spilara betur, en þrír skiptust á að skipa eitt parið. Heiðar og Logi skruppu í æfingaferð suður í borg óttans helgina áður og virðist sú ferð hafa heppnast vel enda stóðu þeir uppi sem sigurvegarar…Lesa meira

true

Húsafell í einu þekktasta viðskiptablaði heims

Viðskiptablaðið Forbes, sem er eitt þekktasta viðskiptablað heims, birti á mánudaginn grein á vefsíðu sinni um Húsafell og aðrar náttúruperlur Borgarfjarðar. Í greininni, sem ber yfirskriftina The Hidden Gem of Iceland: Husafell (Falinn fjársjóður Íslands: Húsafell), er sagt frá Húsafelli og þeirri stórbrotnu náttúru sem finna má í grenndinni. Greinarhöfundur skrifar mjög jákvætt um þær…Lesa meira

true

Hent í verstu holurnar

Vinnuflokkur frá Hlaðbæ Colas er nú að gera við skemmdir í götum á Akranesi, þarna á Kirkjubraut. Í gær var lokið við að malbika Vesturgötu og hillir brátt undir lok framkvæmda þar.Lesa meira

true

Skúlptúr á vegg gamla samkomuhússins

Einhver eða einhverjir sem fóru fyrr í þessum mánuði um Snæfellsnes tóku sig til og máluðu norn eða einhvers konar teiknimyndapersónu á húsgafl gamla samkomuhússins neðan við Dalsmynni í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ekki er vitað hverjir voru þarna á ferð, en listamannsnafnið er Lolo. Nornin hefur vakið talsverða athygli ferðamanna sem margir hverjir hafa stoppað…Lesa meira

true

Átelja svik ríkisstjórnar um að lækka tryggingagjaldið

„Stjórn Félags ráðgjafarverkfræðinga lýsir yfir miklum vonbrigðum með að enn er tryggingagjald hér á landi of hátt og ekkert bólar á áformum um að lækka það þrátt fyrir að atvinnuleysið hafi nær horfið. Það eru gríðarleg vonbrigði að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2017 skuli ekki sjá stað samkomulag stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins um…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð Snæfellsnessamstarfsins

Árlegt fótboltamaraþon og uppskeruhátíð Snæfellsnessamstarfsins í fótbolta fór fram um síðustu helgi. Spilaður var fótbolti í sólarhring og skipt upp tímanum á Stykkishólm, Grundarfjörð og Snæfellsbæ. Fyrr í vikunni höfðu krakkarnir gengið í hús og safnað áheitum og safnaðist vel. Skemmtu bæði krakkarnir og fullorðnir sér mjög vel. Eins og venja er við þetta tilefni…Lesa meira

true

Sveitarfélagið kaupir hitaveituhlut

Nýverið samþykkti hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps kaup sveitarfélagsins á hlut Sigurðar Hreinssonar og Félagsbúsins Miðhrauni í Hitaveitu Eyja- og Miklaholtshrepps. Oddviti fór yfir drög að kaupsamningnum á fundi og kynnti yfirlýsingu Félagsbúsins Miðhrauni um að öll réttindi sem það hafði fengið með samningi frá 2004 flytjist yfir til sveitarfélagsins. Jafnframt kynnti hann drög að samningi…Lesa meira

true

Skápur eftir Helga frá Vogi gefinn byggðasafninu

Byggðasafn Borgarfjarðar tók nýverið við merkum grip, skáp sem smíðaður var af Helga Helgasyni bónda í Vogi á Mýrum. Helgi var fæddur sama ár og Skaftáreldar hófust, eða 1783. Hann vann við smíði skápsins árið 1829 þegar hann lá í veri við selveiðar í Hvalseyjum við Mýrar og mun sjálfskeiðungur hans hafa verið eitt helsta…Lesa meira

true

Svíum kynnt viðleitni okkar að byggja upp sjálfbæra ferðaþjónustu

Sænsk stjórnvöld ætla á þessu ári að móta heildstæða stefnu fyrir sænska ferðaþjónustu sem byggir á sjálfbærni. Af því tilefni kom hingað til lands nýverið fimm kvenna sendinefnd og kynnti sér þær áskoranir sem íslensk ferðaþjónusta hefur staðið frammi fyrir á liðnum árum og hvernig brugðist hefur verið við á landsvísu og einstökum landshlutum. Meðal…Lesa meira