Fréttir

true

Hjólað yfir heiðar í helgarferð um Dali, Strandir og Reykhólasveit

Síðastliðinn laugardag urðu á vegi fréttaritara Skessuhorns ellefu skærklæddir ferðalangar á reiðhjólum í Ólafsdal við Gilsfjörð. Voru þar á ferð félagar úr hjólarækt ferðafélagsins Útivistar. Þarna var nýhafin helgarferð þar sem hópurinn ætlaði að hjóla úr Gilsfirði í Kollafjörð yfir Steinadalsheiði, gista á Hólmavík og hjóla svo til baka yfir Tröllatunguheiði að Tjarnarlundi í Saurbæ…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Ok endurnýjar í tækjaflotanum

Félagar í Björgunarsveitinni Oki í Borgarfirði brugðu sér bæjarleið á mánudaginn og sóttu þrjú ný tæki til leitar- og björgunarstarfa sem sveitin hefur fest kaup á. Þetta voru sexhjól, fjórhjól og Jet sky og eru tæki þessi öll keypt af Ellingsen. Áður hafði sveitin fengið nýjan slöngubát sem keyptur var af Vélasölunni. Að sögn Tryggva…Lesa meira

true

Átelur sveitarstjórn vegna fyrirætlana um skotæfingasvæði

Trausti Eiríksson sem býr og starfar í Lækjarkoti, skammt ofan við Borgarnes, skrifar fremur harðort opið bréf til sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna fyrirætlana sveitarstjórnar um að setja í ferli undirbúning að skotæfingasvæði í nágrenni Einkunna og jarðar hans. Staða þessa máls er sú að sveitarstjórn hefur ákveðið að opna fyrir þann möguleika að í nýju aðalskipulagi…Lesa meira

true

Fjórar stúlkur af Vesturlandi keppa í Ungfrú Ísland

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland verður haldin í Hörpu í Reykjavík laugardagskvöldið 26. ágúst næstkomandi. Í nýjasta tölublaði Skessuhorns var rætt við Úrsúlu Hönnu Karlsdóttur frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum, en hún er einn keppenda að þessu sinni. Úrsúla er þó langt því frá að vera eini fulltrúi Vestlendinga í Ungfrú Ísland, því auk hennar munu þrjár aðrar…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti dýrmæt stig til Eyja

Víkingur Ólafsvík nældi sér í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttu Pepsi deildar karla með sterkum 0-1 útisigri á nýkrýndum bikarmeisturum ÍBV í gærkvöldi. Leikmenn Víkings voru sterkari framan af fyrri hálfleik og stjórnuðu gangi mála inni á vellinum. Heimamenn í ÍBV lágu hins vegar til baka og freistuðu þess að sækja hratt. Hvorugu liði tókst…Lesa meira

true

Íþróttamót Dreyra er framundan

Íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra verður haldið á Æðarodda við Akranes dagana 19.-20. ágúst nk. Í tilkynningu frá mótanefnd kemur fram að tímasetning upphafs móts fari eftir því hvernig skráning verður og því gæti það hafist föstudaginn 18. ágúst. Keppnisgreinar verða fimmgangur í 1. flokki, 2. flokki minna vanir, ungmennaflokki, unglingaflokki og opnum flokki. Í fjórgangi verður…Lesa meira

true

Ævintýrahátíðin Steampunk Iceland framundan á Akranesi

Ævintýrahátíðin Steampunk Iceland IV verður haldin dagana 18. til 20. ágúst næstkomandi, frá föstudegi til sunnudags. Hátíðin er í boði Útlagastjórnar Bíldalíu og Hins Íslenzka Gufufjelags og fer fram í Dularfullu búðinni að Skólabraut 14 á Akranesi. „Hátíðin verður nú haldin í fyrsta sinn á Akranesi. Undanfarin þrjú ár hefur hún verið á Bíldudal og…Lesa meira

true

Íslandsmót golfklúbba að baki

Íslandsmót golfklúbba fór fram dagana 11. til 13. ágúst síðastliðna. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur í kvennaflokki. Keppni í 1. deild kvenna fór fram á Akranesi þar sem Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði sigri. Er þetta þriðja árið í röð sem GR sigrar fagnar Íslandsmeistaratitlinum í kvennaflokki og samtals hefur klúbburinn sigrað deildina…Lesa meira

true

Leiðrétt frétt vegna afmælis Hallgrímskirkju í Saurbæ

Í prentútgáfu Skessuhorns, sem kom út í gær, er frétt þar sem segir að næstkomandi sunnudag verði þess minnst með hátíðarguðsþjónustu í Hallgrímskirkju í Saurbæ að 60 ár eru liðin frá vígslu kirkjunnar. Hið rétta er að afmælisguðsþjónustan var síðastliðinn sunnudag og er því afstaðin. Fyrir slysni álpaðist frétt í blaðið sem skrifuð var fyrir…Lesa meira

true

Skipsbjalla úr M/S Hvítá afhent Byggðasafni Borgarfjarðar

Fyrr í vikunni var Byggðasafni Borgarfjarðar afhentar tvær góðar gjafir þegar Björgvin E. Vídalín framkvæmdastjóri Eldvíkur ehf. afhenti safninu skipsbjöllu og lukt úr skipinu M/S Hvítá. Hvítá var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 og kom til Íslands sama ár. Skipið var til að byrja með 91 brúttólest en var síðar stækkað upp í hundrað lestir.…Lesa meira