Fréttir

true

Hagvöxtur hvergi meiri en á Vesturlandi

Þróunarsvið Byggðastofnunar, í samvinnu við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, hefur gefið úr skýrsluna Hagvöxtur landshluta 2008-2015. Nokkrar af helstu niðurstöðum skýrslunnar eru þær að hagvöxtur á tímabilinu mældist 3% á höfuðborgarsvæðinu en 6% utan þess. Mestur hagvöxtur á landinu öllu á þessu árabili var á Vesturlandi, eða 7%. Fram kemur m.a. að framleiðsla jókst mest á…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í hrútaþukli á sunnudaginn

Í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum verður sunnudaginn 20. ágúst kl. 14 haldið Íslandsmeistaramót í hrútaþukli. Þetta er í fimmtánda skipti sem mótið fer fram. Þessi íþróttagrein er uppfinning Strandamanna. Á síðasta ári mættu um 500 manns til að horfa á keppnina og yfir 70 tóku þátt. „Kaffihlaðborð og kjötsúpa verður í boði á Sauðfjársetrinu,…Lesa meira

true

Ráðherra kynnti áform um nýja Þjóðgarðastofnun

Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag í ríkisstjórn áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun sem tæki við verkefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls auk annarra tiltekinna verkefna á sviði náttúruverndar á vegum Umhverfisstofnunar. Markmiðið er að efla og styrkja sameiginlega starfsemi og stoðþjónustu þjóðgarða og friðlýstra svæða en um leið viðhalda…Lesa meira

true

Flokksráð VG í blátært borgfirskt sveitaloft til stefnumótunar

Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fer fram í félagsheimilinu Logalandi í Borgarfirði um helgina. Að fundi loknum fara félgar í VG í árlega sumarferð og heimsækja flokksfélaga sína í héraði.  Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, heldur ræðu í upphafi fundar og leggur línurnar fyrir spennandi vetur í stjórnmálunum.  „Við þurfum aðgerðir strax til að snúa af…Lesa meira

true

HP pípulagnir auka starfsemina í Borgarnesi

Fyrir ári greindi Skessuhorn frá því að pípulagningameistarinn Hilmir B. Auðunsson hygðist flytja fyrirtæki sitt frá Borgarnesi til Reykjavíkur vegna þess að hann gat ekki mannað fyrirtækið. Nú ári síðar er annað upp á teningnum hjá Hilmi en hann rekur enn fyrirtækið í Borgarnesi og hefur nú stækkað það. „Fréttin í Skessuhorni í fyrra um…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur boða til auka aðalfundar

Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, hefur sent út fundarboð um auka aðalfund í samtökunum sem haldinn verður föstudaginn 25. ágúst næstkomandi á Hótel Sögu. Í fundarboðinu kemur fram að farið verði yfir tillögur að aðgerðum vegna erfiðrar stöðu í sauðfjárrækt. Eins og rækilega hefur komið fram í fréttum geta bændur vænst allt að 35%…Lesa meira

true

Kosið um sameiningu á Snæfellsnesi í vetur

Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir stefnt að kosningu í lok nóvember eða byrjun desember meðal íbúa Stykkishólmsbæjar, Helgafellssveitar og Grundarfjarðar. Þar verði athugað hvort vilji sé til sameiningar meðal íbúanna. Verði af sameiningu þessarra þriggja sveitarfélaga á norðanverðu Snæfellsnesi yrði kosið í nýju sveitarfélagi í sveitarstjórnakosningunum næsta vor. Þetta er meðal þess sem kom…Lesa meira

true

Dregur úr veltuaukningu korta

Í júlí síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta hérlendis 33,2 milljörðum króna og hefur aldrei verið meiri. Í skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar segir að verulega hafi þó dregið úr þeim mikla vexti sem hefur verið í kortaveltu erlendra ferðamanna undanfarin ár en vöxtur frá því í júlí í fyrra var nú 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur kortaveltan vaxið…Lesa meira

true

Elstu börn frá 2016 fá inni á leikskólum til að mæta brýnni þörf

Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudaginn að elstu börnum í bæjarfélaginu, sem fædd eru 2016, verði boðin dvöl á leikskóla með það að markmiði að losa um pláss hjá dagforeldrum. Þetta er ákveðið vegna mikils skorts á dagvistunarúrræðum í bæjarfélaginu, sem jókst enn frekar nú í byrjun ágúst þegar tvær dagmæður…Lesa meira

true

Ríkið hefur innheimt 3,2 milljarða í virðisaukaskatt vegna Hvalfjarðarganga

Þegar Bjarni Jónsson varaþingmaður VG í Norðvesturkjördæmi tók sæti á Alþingi síðasta vetur lagði hann fram fjölda fyrirspurna um samgöngumál. Meðal annars spurði hann Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra um upphæð innheimts virðisaukaskatts af veggjöldum vegna aksturs um Hvalfjarðargöng frá því að göngin voru opnuð sumarið 1998. Í svari ráðherra kemur fram að á verðlagi hvers árs…Lesa meira