Fréttir

true

Gunnlaugur Jónsson hættir með Skagamenn

Knattspyrnufélag ÍA sendi frá sér yfirlýsingu nú rétt í þessu þar sem kemur fram að Gunnlaugur Jónsson hafi óskað eftir því við stjórn félagsins að stíga til hliðar sem þjálfari meistaraflokks ÍA. Stjórnin samþykkti beiðni Gunnlaugs og hefur falið Jóni Þór Haukssyni, aðstoðarmanni Gunnlaugs, að stjórna liðinu út tímabilið. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA vill koma á…Lesa meira

true

Banna dreifingu mjólkur frá bæ í Skagafirði

„Dreifing mjólkur hefur verið stöðvuð til bráðabirgða frá bænum Viðvík í Skagafirði. Ástæða dreifingarbanns er að eftirlitsmanni Matvælastofnunar var meinaður aðgangur að eftirlitsstað,“ segir í tilkynningu sem Matvælastofnun var að senda. „Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Á meðan slíkt ástand…Lesa meira

true

Nýir kvensjúkdómalæknar til starfa

Á kvennadeild HVE á Akranesi eru tvö stöðugildi sérfræðinga í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Nýverið voru tveir kvensjúkdómalæknar ráðnir í hlutastöður og von er á þriðja sérfræðingnum og þegar sú ráðning gengur í gegn verður hægt að fylla upp í stöðugildin tvö. „Þetta er mikil breyting frá því var fyrir nokkrum mánuðum og raunar í mörg…Lesa meira

true

Breiðablik vann öruggan sigur á Víkingum

Víkingur Ólafsvík hefur á undanförnum vikum verið að styrkja stöðu sína í deildinni eftir brösótta byrjun í sumar. Liðið mætti Breiðabliki í Ólafsvík í gær í sextándu umferð Pepsideildar en Víkingur hafði unnið tvo leiki í röð fyrir þann leik. Breiðablik hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið og…Lesa meira

true

Grátlegt tap ÍA gegn ÍBV

ÍA og ÍBV mættust í sannkölluðum botnslag í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn sátu fyrir leikinn á botni deildarinnar og Eyjamenn í sætinu fyrir ofan. Skagamenn þurftu nauðsynlega á sigri að halda en varð ekki að ósk sinni. ÍBV vann með einu marki gegn engu og staðan orðin…Lesa meira

true

Meirihluti sveitarfélaga útvegar frí skólagögn

Ríflega tvöfalt fleiri sveitarfélög í landinu ætla að útvega grunnskólabörnum skólagögn, svo sem ritföng og pappír, án endurgjalds á nýhöfnu skólaári en gerðu það í fyrra, eða samtals 41 sveitarfélag. Þá ætla 17 sveitarfélög að draga úr kostnaðarþátttöku nemendanna vegna skólagagna. Þetta er niðurstaða könnunar sem Velferðarvaktin lét framkvæma. Velferðarvaktin hefur á liðnum árum lagt…Lesa meira

true

Smásalar hætta að gefa upplýsingar um veltu

Rannsóknasetur verslunarinnar hefur hætt birtingu veltuvísitölu dagvöruverslana og nokkurra annarra flokka smásölu, svo sem fata og raftækja. Ástæðan er sú að aðilar með mikla markaðshlutdeild á smásölumarkaði hafa ákveðið að hætta miðlun á upplýsingum um veltutölur sínar, vilja halda þeim fyrir sig. Áfram verður þó haldið birtingu á veltuvísitölu byggingavöru, húsgagna og áfengis. „Smásöluvísitalan hefur…Lesa meira

true

Atvinnuleysi er 2,6% á landsbyggðinni

Á öðrum ársfjórðungi 2017 var atvinnuþátttaka 84,4% hér á landi. Hlutfall starfandi mældist 81,5% og atvinnuleysi var 3,4%. Frá öðrum ársfjórðungi 2016 fjölgaði starfandi fólki um 3.500 en hlutfall af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 200 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,2 prósentustig. Atvinnulausar konur voru…Lesa meira

true

Skaginn 3X opnar söluskrifstofu í Noregi

Tæknifyrirtækið Skaginn 3X sem hefur starfsstöðvar á Akranesi og Ísafirði mun á næstunni opna söluskrifstofu í Noregi en fyrirtækið hefur sótt inn á Noregsmarkað að undanförnu. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá. Skaginn 3X hefur gert stóra samninga um ofurkælingarbúnað sinn við norsk laxasláturhús og er mikill áhugi á vörulínum fyrirtækisins í Noregi, bæði hjá hefðbundnum…Lesa meira

true

Bæði Vesturlandsliðin með heimaleiki í dag

Víkingur Ólafsvík tekur á móti Breiðabliki á Ólafsvíkurvelli í Pepsídeild karla klukkan 18 í dag. En um svipað leiti lýkur enn þýðingarmeiri leik, því ÍA tekur á móti Eyjamönnum á Akranesvelli í dag klukkan 16. Bæði lið munu vafalítið leggja allt í sölurnar til sigurs, Skagamenn eru fyrir leikinn á botni deildarinnar en Eyjamenn næstneðstir.…Lesa meira