Fréttir

true

Örlög sementsstrompsins á Akranesi verða ákveðin á næsta ári

Nýverið var boðinn út fyrsti áfangi niðurrifs bygginga og búnaðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Í fyrsta áfanga verður m.a. rifin efnisgeymslan og ofnhúsið. Áætlað er að fyrsta áfanga niðurrifsins verði lokið seinni part ágústmánaðar 2018. Frá því bæjaryfirvöld auglýstu eftir tilboðum í fyrsta áfanga niðurrifsins hefur sprottið upp nokkur umræða á Akranesi um mannvirki sem mörgum…Lesa meira

true

Telja að víkingaaldarminjar hafi fundist í Ólafsdal

Síðastliðinn laugardag hélt hópur af stað í gönguferð um Ólafsdal undir leiðsögn Birnu Lárusdóttur fornleifafræðings. Gangan var hluti af dagskrá Ólafsdalshátíðarinnar sem fram fór sama dag. Birna vinnur hjá Fornleifastofnun Íslands og var hún að eigin sögn svo heppin að fá að hafa yfirumsjón með fornleifaskráningu í dalnum í samstarfi við Minjavernd, sem hefur verið…Lesa meira

true

Fékk draum sinn um nýjan hest uppfylltan

Áslaug Þorsteinsdóttir á Akranesi hefur um nokkurt skeið átt þann draum að eignast nýjan hest. Hryssuna Stemmu hefur hún átt í mörg ár og náðu þær vel saman. Nú er Stemma orðin gigtveik og gengur í haganum á Skálpastöðum, en þaðan er Áslaug. En til að fá draum sinn uppfylltan og kljúfa málið fjárhagslega fór…Lesa meira

true

Úrsúla Hanna tekur þátt í keppninni Ungfrú Ísland

Lokakvöld fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Ísland verður í Hörpu í Reykjavík laugardagskvöldið 26. ágúst næstkomandi. Meðal keppenda er Úrsúla Hanna Karlsdóttir frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum. „Ég hef satt að segja aldrei fylgst mikið með Ungfrú Ísland,“ segir Úrsúla í samtali við Skessuhorn. „Ég rakst á snapchat-aðgang keppninnar þegar Anna Lára Orlowska var með snappið meðan hún keppti…Lesa meira

true

Sextíu og átta ára á Heimsmeistaramóti í sundi

Guðmunda Ólöf Jónasdóttir úr Borgarnesi, eða Mumma Lóa, er nú stödd í Búdapest í Ungverjalandi á Heimsmeistaramótinu í garpasundi, Fina World Masters Championships. Um er að ræða sundmót fyrir eldri iðkenndur og er mótinu aldurskipt þar sem yngstu keppendurnir keppa í flokki 25-29 ára og þeir elstu í flokki 95-99 ára. Guðmunda er 68 ára…Lesa meira

true

Fáránleg hegðun mælist í hópi ungra ökumanna

Í könnun sem nýverið var unnin fyrir tryggingafélagið Sjóvá kemur fram að 83% framhaldsskólanema nota snjallsíma við akstur. Það eru yngstu ökumennirnir sem nota símann minnst við akstur en þeir eldri nota hann töluvert meira. Þannig segjast 27% 17 ára nemenda aldrei nota snjallsíma undir stýri en það hlutfall er aðeins 8% hjá þeim 20…Lesa meira

true

Þangskurðarpramminn Sigri sjósettur við hátíðlega athöfn í Stykkishólmi

Á fimmtudaginn í síðustu viku var þangskurðarpramminn Sigri sjósettur við hátíðlega athöfn við Súgandisey í Stykkishólmi. Viðstaddir voru meðal annarra Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra nýsköpunar, Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og fyrrum ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson og Gunnar Bragi Sveinsson. Séra Karl Matthíasson blessaði prammann og flutt voru ávörp. Þangskurðarpramminn er nýsköpunarverkefni sem unnið er af…Lesa meira

true

Hefur trú á að sveitarfélögin á norðanverðu Snæfellsnesi geti eflst sameinuð

Dagbjört Höskuldsdóttir er fædd og uppalinn í Stykkishólmi og hefur búið þar stærstan hluta ævinnar. Hún hefur verið virk innan samfélagsins alla tíð; sem bæjarfulltrúi, varaþingmaður, skáti, kaupmaður, í kvenréttindabaráttu, verið leiðsögumaður og síðast en ekki síst bókaunnandi. Dagbjört þekkir Stykkishólm vel og hefur alla tíð kunnað vel við sig í bænum en rætur hennar…Lesa meira

true

Búið að vera mjög skemmtilegt að standa í þessu“

Tjaldsvæðið í Kalmansvík á Akranesi var opnað 5. maí í vor og verður opið til 1. október næstkomandi. Ása Katrín Bjarnadóttir og Sigga Dísa Þórhallsdóttir hafa sinnt sumarstarfi á tjaldsvæðinu í sumar en það er í rekstri hjá Akraneskaupstað. Skessuhorn hitti Ásu að máli og rifjuð var upp reynsla þeirra af starfinu í sumar. Þar…Lesa meira

true

Breyttu og bættu Unimok Lífsbjargar

Undanfarið hafa félagar í Björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ unnið að því að breyta og bæta Unimok bíl sem sveitin á. Var bílnum breytt þannig að nú nýtist hann sem tækjabíll en var áður með húsi og gat því flutt fólk ásamt fleiru. Það var 16. júní í fyrra að fjórir félagar úr sveitinni byrjuðu að…Lesa meira