Fréttir

true

Fyrsta skemmtiferðaskipið til Akraness

Síðastliðinn sunnudag kom í fyrsta sinn skemmtiferðaskip til hafnar á Akranesi. Le Boreal hét skipið sem kom snemma morguns og lá við bryggju fram á kvöld. Skipið var smíðað árið 2010 og er tæplega ellefu þúsund brúttótonn. Það er 142 m á lengd, breidd er 18 m og djúpristan er 4,8 m. Farþegar skipsins voru…Lesa meira

true

Veita grunnskólanemum frí námsgögn

Akraneskaupstaður bættist á fimmtudag í hóp þeirra sveitarfélaga sem mun leggja öllum grunnskólanemum til námsgögn, ritföng og stílabækur, foreldrum að kostnaðarlausu frá og með haustinu 2017. Bæjarráð samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum. „Með ákvörðun sinni vill skóla- og frístundaráð tryggja öllum börnum á grunnskólaaldri á Akranesi, grunnmenntun án endurgjalds og stuðla þannig að…Lesa meira

true

Ætla að gefa fjölnota taupoka í dag

Farfuglaheimilið í Borgarnesi, Borgarnes HI Hostel, hefur ákveðið að gefa öllum sem koma að Borgarbraut 9-13 í dag, þriðjudaginn 1. ágúst 2017, fjölnota taupoka úr lífrænni bómull. Tilefnið er að fagna átaki sem hófst 3. júlí á Alþjóðlega plastpokalausa deginum og hvetur fólk til að nota ekki einnota plastpoka. Jafnframt er ákvörðunar sveitarstjórnar Borgarbyggðar sem…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki inn á Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, verður ekki meðal keppenda á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hefst í Skotlandi á fimmtudaginn. Hún keppti á úrtökumóti fyrir risamótið í dag og lauk leik á 74 höggum, eða tveimur höggum yfir pari. Þegar þessi orð eru rituð deildi Valdís 41. sætinu með tíu öðrum kylfingum.…Lesa meira

true

New York Times beinir kastljósinu að Húsafelli

Í grein sem birtist í hinu virta tímariti New York Times síðastliðinn föstudag er kastljósinu beint að Húsafelli sem næsta stóra áfangastað ferðamanna hér á landi. Greinarhöfundur rekur hina miklu fjölgun ferðamanna hingað til lands á undanförnum árum. Hann segir áhrif uppsveiflunnar að sjá alls staðar um landið. Flestir þekktustu áfangastaðirnir séu orðnir svo umsetnir…Lesa meira

true

TF-LÍF á ferð og flugi á Akranesi

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, lenti á Akranesi skömmu fyrir hádegið í dag, mánudaginn 31. júlí. Ekki var um slys að ræða heldur voru gæslunnar menn að sækja björgunarsveitarmenn og búnað. Þyrlan lenti á bílastæðinu við húsnæði Björgunarfélags Akraness að Kalmannsvöllum. Gatan var lokuð fyrir umferð á meðan lendingu stóð. Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman til að…Lesa meira

true

Umhverfisbætur og skemmtileg nýjung í flóru Dalanna

Föstudaginn 21. júlí sl. tók óvænt tónlistaratriði á móti vegfarendum sem leið áttu um Vesturbraut í Búðardal. Þar höfðu þau Melkorka Benediktsdóttir og Jóhann Elísson komið sér fyrir og spiluðu á harmonikkur. Svavar Garðarsson fékk þau til verksins, en nýlega lauk hann við að þökuleggja reit við Vesturbrautina þar sem hann setti einnig upp litla palla…Lesa meira

true

Valdís Þóra keppir á úrtökumóti fyrir Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, leikur í dag á úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst í Skotlandi á fimmtudaginn. Úrtökumótið sem Valdís keppir á fer fram á Castle Course í St. Andrews í Skotlandi. Hún á rástíma kl. 11.00, eða eftir eina klukkustund. Aðeins leikinn einn 18 holu hringur í…Lesa meira

true

Búið að opna Viðvík

Veitingastaðurinn Viðvík Resturant var formlega opnaður laugardaginn 22. júlí sl. á Hellissandi. Viðvík er við þjóðveginn þegar ekið er frá Sandi og suður fyrir jökul. Húsnæðið sem hann er í hefur verið mikið endurbætt og er staðurinn allur hinn glæsilegasti. Opnuninni var fagnað kvöldið áður og gestum boðið að skoða húsnæðið og fagna með eigendum.…Lesa meira

true

Bjóða út byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi er nú að undirbúa framkvæmdir við byggingu nýrrar frístundamiðstöðvar við Garðavöll. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Akraneskaupstað. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns samþykkti bæjarstjórn að fara af stað með verkefnið í samstarfi við golfklúbbinn. „Nú erum við að bjóða út steypuhluta byggingarinnar, þ.e. grunn og sökkla,…Lesa meira