Fréttir

true

Gjöf frá yngri borgurum til eldri borgara

Síðastliðin ár hefur Haraldur Már Stefánsson haft umsjón með Skallagrímsvelli í Borgarnesi, ásamt nokkrum öðrum verkefnum. Fyrir nokkru síðan kom Jakob Skúlason að máli við Harald og vakti máls á því að bekki vantaði á völlinn fyrir eldri borgara, sem og þá sem eru að ná sér eftir veikindi. Taldi hann að eldra fólk, og…Lesa meira

true

Á góðri stund fór vel fram

Bæjarhátíðin „Á góðri stund“ í Grundarfirði fór fram um helgina í ágætis veðri. Þó nokkur fjöldi fólks var í bænum og voru tjaldsvæði bæjarins þétt setin. Úrval afþreyingar var í boði fyrir unga sem aldna og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin náði svo hámarki þegar að lituðu skrúðgöngurnar mættust í miðbænum og…Lesa meira

true

Ný skilti með málverkum eftir Baska afhjúpuð

Á mánudaginn síðastliðinn voru skilti sem unnin voru af listamanninum Baska afhjúpuð á gönguleiðinni á útivistarsvæðinu við Elínarhöfða, frá þar sem áður stóð bærinn Hausthús og að Miðvogi. Skiltin eru fimm talsins og standa öll þar sem áður voru bæir sem nú eru horfnir. Á skiltunum er stuttur fróðleikur um hvert og eitt hús sem…Lesa meira

true

Dalli er íbúi ársins í Reykhólahreppi

Guðjón Dalkvist Gunnarsson hefur verið kjörinn íbúi ársins í Reykhólahreppi. Efnt var til kosningunnar í tengslum við hátíðina Reykhóladaga, sem fram fór um síðustu helgi. Kallað var eftir tilnefningum og var Guðjón Dalkvist, eða Dalli eins og hann er oftast kallaður, einn þeirra sem fékk flest atkvæði. Var það einróma álit dómnefndar að Dalli væri…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir í Snæfellsbæ

Í sumar hafa verið miklar framkvæmdir í Snæfellsbæ að sögn Kristins Jónssonar bæjarstjóra. Meðal annars er Landsnet að leggja streng milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur og leggja í leiðinni ljósleiðara í Fróðárhreppi. Einnig er verið að leggja ljósleiðara á sunnanverðu Nesinu, auk þess sem Rarik er að leggja jarðstreng frá Gröf að Hellnum, og einnig ljósleiðara…Lesa meira

true

Breyttu slipp í veislusal

Nýverið gengu þau Helga Sjöfn Jóhannesdóttir og Jónmundur Valur Ingólfsson í heilagt hjónaband í Akraneskirkju. Eftir athöfnina var gestum boðið til veislu. Þau völdu óhefðbundinn stað fyrir brúðkaupsveisluna því fyrir valinu varð Slippurinn á Akranesi. Rýmið sem veislan var haldin í hýsir dagsdaglega framleiðslu á plötufrystum, en var vikuna fyrir brúðkaup breytt í stórglæsilegan veislusal undir…Lesa meira

true

Víkingur tapaði í spennandi leik

Víkingur Ólafsvík hefur gengið ágætlega í Pepsideildinni að undanförnu. Víkingur mætti KR í Frostaskjóli í gærkvöld. Víkingur var fyrir leikinn tíunda sæti með þrettán stig en KR í því fimmta með sautján stig. Með sigri í leiknum hefði Víkingur getað slitið sig frá botnbaráttunni, um tíma í það minnsta. Leikurinn var hin mesta skemmtun en…Lesa meira

true

Stærsta tap ÍA í deildarleik í sögu félagsins

Skagamönnum hefur gengið afleitlega það sem af er tímabili í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í gærkvöldi mættu þeir toppliði Vals í þrettándu umferð deildarinnar. Fyrir leikinn bjuggust fáir við öðru en öruggum sigri Valsmanna og reyndist það vera raunin. Skagamenn töpuðu leiknum 6-0 og setti liðið þar með met þar sem ÍA hafði fram að…Lesa meira

true

Heiðrún Harpa snýr heim í Borgarnes

Körfuknattleiksdeild Skallagríms samdi á mánudag við Heiðrúnu Hörpu Ríkharðsdóttur um að leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna á komandi vetri. Leikmannahópur liðsins er því farinn að taka á sig lokamynd, að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. Skallagríms. Heiðrúnu Hörpu þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum Skallagríms. Hún er 25 ára…Lesa meira

true

Hægja á umferð til varnar kríunni

Á hverju vori setja starfsmenn Vegagerðarinnar upp skilti sitt hvoru megin við Rif á Snæfellsnesi til að minna vegfarendur á að taka tillit til kríuvarpsins. Í sumar hefur hins vegar verið ekið á óvenju margar kríur og kríuunga. Hefur sveitarfélagið Snæfellsbær því látið koma fyrir keilum við efri Rifsafleggjara til að reyna að draga úr…Lesa meira