Fréttir

true

Silicor nánast á byrjunarreit gagnvart lóð á Grundartanga

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr í vikunni hefur með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. júní verið felld úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 25. apríl 2014 þess efnis að fyrirhuguð framkvæmd Silicor Materials Inc., á Grundartanga skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Nú þarf Silicor því að fara í gegnum umhverfismat ætli fyrirtækið…Lesa meira

true

Hallbera Guðný á leið á sitt annað stórmót

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, var að ljúka við að kynna lokahópinn sem fer á Evrópumót kvenna í sumar. Mótið hefst 16. júlí og fyrsti leikur Íslands er 18. júlí gegn Frakklandi. Leikið verður í Hollandi og er Ísland í sterkum riðli með Austurríki, Sviss auk Frakklands. Þetta er í þriðja sinn í röð…Lesa meira

true

Skreytt fyrir Brákarhátíð

Hverfin í Borgarnesi og nærliggjandi þéttbýliskjörnum eru nú óðum að taka á sig hátíðarbúning. Íbúar keppast við skreytingar til að allt verði sem fínast í kvöld þegar fyrsti viðburður Brákarhátíðar verður haldinn. Hann verður einmitt í næsta nágrenni Þórðargötu þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi. Á vellinum neðan við götuna en ofan við…Lesa meira

true

Nýstofnað Hljómlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir viðburðum

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar var stofnað í Borgarnesi 1. júní síðastliðinn. Það voru fjórir Borgnesingar sem tóku sig saman og ákváðu að stofna félagið, þau Þóra Sif Svansdóttir, sem jafnframt er formaður félagsins, Halldór Hólm Kristjánsson, Daði Georgsson og Sigurþór Kristjánsson, best þekktur sem Sissi. Öll hafa þau unnið mikið í tónlist og fannst vanta félag sem…Lesa meira

true

Skora á ráðherra að láta friða teistuna

Félagið Fuglavernd hefur óskað eftir því við Björt Ólafsdóttur umhverfisráðherra að hún beiti sér fyrir friðun teistunnar. Teista er svartfugl og er stofn hennar talinn mjög lítill en áætlað er að tíu til fimmtán þúsund varppör sé að finna við landið, sem svarar til 51.000-77.000 einstaklingum. Teistum hefur fækkað verulega víða um land og er…Lesa meira

true

Fiskistofa synjar sjóstangveiðifélögum um mótshald

Fiskistofa hefur synjað Sjóstangveiðifélaginu Skipaskaga og sjö öðrum sjóstangveiðifélögum hér á landi veiðiheimild og þar með leyfi til að halda sjóstangveiðimót á þessu ári. Þessi rótgróni menningararfur okkar á landsvísu er nú í gíslingu opinberra embættismanna. Átta sjóstangaveiðifélög starfa á landinu. Félögin eru dreifð um landið og starfa í Reykjavík, Akranesi, Ólafsvík, Ísafirði, Siglufirði, Akureyri,…Lesa meira

true

Sýnir Álfabækur á Akranesi en býr í húsbíl á meðan

Um þessar mundir sýnir Guðlaugur Arason, eða Gulli Ara, myndverkin sín Álfabækur á Bókasafni Akraness. Sýningin var opnuð 2. júní sl. og mun standa fram til næstu mánaðamóta. Verkin eru nokkuð óvenjuleg en í einu verki af Álfabókum eru oft yfir tvöhundruð pínulitlar bækur, eftgirgerð af þekktum bókum innlendum og erlendum, auk þess sem einn…Lesa meira

true

„Ég man ekki eftir mér fyrr en mánuði seinna“

Snemma á síðasta ári var Skagamaðurinn Þorkell Logi Steinsson á göngu í Skarðsdal á Skarðsheiði. Hann rann í hálku í um 700 metra hæð með þeim afleiðingum að hann slasaðist alvarlega og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Þar gekkst Þorkell undir aðgerð og um tíma var tvísýnt um hvort hann myndi…Lesa meira

true

Ferðamenn skrifi upp á ábyrga ferðahegðun

Nýverið var í Borgarnesi hrundið af stað átaki á landsvísu sem miðar að því að auka skilning ferðafólks á ábyrgri ferðahegðun. Herferðin er á vegum Inspired by Iceland verkefnisins og snýst um að fá ferðafólk til að skrifa undir átta loforð um að ferðast á ábyrgan hátt um Ísland – The Icelandic Pledge. Meðal þeirra…Lesa meira

true

Báðar ferðir Akraness hafa fallið niður í dag

Báðar ferðir ferjunnar Akraness sem átti að fara frá Reykjavík klukkan hálf sjö í morgun og kl. 10:30 féllu niður. Gunnlaugur Grettisson hjá Sæferðum segir ástæður þess að ferðirnar voru felldar niður hafa verið samspil ölduhæðar og mikils vinds. „Við viljum fyrst og fremst ganga úr skugga um að öryggi farþega sé tryggt og því…Lesa meira