Fréttir

true

Valdís Þóra lék vel á fyrsta keppnisdegi

Í gær hóf Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur frá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, leik á Jabra Ladies Open í Evian í Frakklandi. Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu en Jabra Ladies Open er einnig úrtökumót fyrir Evian risamótið sem fram fer í september á þessu ári. Valdísi Þóru…Lesa meira

true

Ein veglegasta flugsýning síðari tíma hér á landi

Flugsýning verður haldin á Reykjavíkurflugvelli klukkan 12 á morgun, laugardaginn 3. júní. Sýningin er í tilefni að 80 ára afmæli Flugmálafélags Íslands. Að þessu sinni mun F18 herþota taka þátt í sýningunni ásamt farþegaþotu, flugvélum, fornvélum, þyrlum, svifflugum, fisflugvélum, stærstu drónum landsins, þyrilvængjum, fallhlífarstökkvurum og svo mætti áfram telja. Sýningin er með stærsta móti að…Lesa meira

true

Fasteignamat hækkar á nánast öllu landinu

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 13,8% frá yfirstandandi ári og verður 7.288 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2018 sem Þjóðskrá Íslands hefur birt. Fasteignamatið hækkar á 98,3% eigna í landinu en lækkar á 1,7% eigna frá fyrra ári. Samanlagt mat um 130 þúsund íbúða á öllu landinu hækkar samtals um 15,5% frá…Lesa meira

true

Bjóða upp á leikskólapláss eftir fæðingarorlof

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að bjóða níu mánaða börnum í sveitarfélaginu leikskólapláss eftir að fæðingarorlofi foreldra þeirra lýkur, frá og með haustinu 2017. Um er að ræða tilraun með þetta fyrirkomulag sem stendur yfir í tólf mánuði til reynslu. Á fundi byggðarráðs var lagt fyrir minnisblað frá Önnu Magneu Hreinsdóttur, sviðsstjóra fræðslusviðs Borgarbyggðar, þar sem…Lesa meira

true

Lagt til að íþróttamannvirki verði byggt við Auðarskóla í Búðardal

Undirbúningshópur vegna byggingar íþróttamannvirkja í Búðardal var skipaður í október 2016. Hópurinn hefur nú skilað sveitarstjórn Dalabyggðar skýrslu sinni. Þar kemur fram að heppilegasta staðsetningin fyrir mannvirkin verði á reitnum sunnan við leikskólann í Búðardal. Þykir sú staðsetning heppilegust vegna nálægð við grunn- og leikskólann, fráveita er til staðar þar, möguleiki til stækkunar í framtíðinni…Lesa meira

true

Sjötíu ár frá fyrsta áætlunarflugi Loftleiða

Um miðjan júní árið 1947 kom hingað til lands fyrsta áætlunarflugvél flugfélagsins Loftleiða; Douglas DC-4 Skymaster. Hafði vélin einkennisstafina TF-RVH og hlaut nafnið Hekla. Síðar kom önnur vél sömu gerðar, hin fræga Geysir, sem brotlenti eins og margir muna á Bárðarbungu á Vatnajökli 14. september 1950. Engin farþegar voru um borð í vélinni en sex…Lesa meira

true

(Uppfærð frétt) – Bruni í sumarbústað í Skorradal

Allt tiltækt slökkvilið í Borgarbyggð og Skorradal hefur verið kallað til vegna bruna í sumarhúsi í neðsta sumarhúsahverfinu í landi Dagverðarness í Skorradal. Húsið sem merkt er nr. 24 var mannlaust þegar eldsins varð vart um klukkan 19 í kvöld. Nú eru slökkviliðsmenn mættir frá slökkvililiðinu á Hvanneyri og á hverri stundu er von á…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað Skessuhorns í næstu viku

Með Skessuhorni í næstu viku fylgir árlegt Sjómannadagsblað. Þar verður rætt við sjómenn og ýmsa aðra sem tengjast greininni. Líkt og undanfarin ár er blaðinu dreift auk hefðbundinnar dreifingar á öll heimili og í fyrirtæki á Snæfellsnesi. Auglýsendum er bent á að hafa samband við markaðsdeild Skessuhorns í þessari viku, eða í síðasta lagi á…Lesa meira

true

Hugmyndir um Bjössatorg í anda Bjössaróló

Hollvinasamtök Borgarness hafa komið á framfæri við sveitarstjórn Borgarbyggðar hugmynd Kjartans Ragnarssonar um Bjössatorg við Brákarsund. Ástæða þess að hollvinasamtökin bera þessa hugmynd upp núna er sú að sveitarstjórn ákvað á fundi sínum 11. maí sl. að gera breytingar á deiliskipulagi fyrir elsta hluta Borgarness við Brákarsund í þágu opins svæðis fyrir almenning. Hugmyndin gengur…Lesa meira

true

„Gengið vonum framar síðan við byrjuðum“

Á vormánuðum greindi Skessuhorn frá stofnun ferðaþjónustufyrirtækisins Ocean Adventures í Stykkishólmi. Að því standa Hulda Hildibrandsdóttir og Hreiðar Már Jóhannesson. Bjóða þau ferðamönnum upp á styttri siglingar um eyjarnar og nágrenni Stykkishólms. Siglt er út að Elliðaey, sem er 4,5 sjómílur frá Stykkishólmi. Síðan er siglt inn fjörðinn áður en haldið er aftur til hafnar…Lesa meira