Fréttir

true

Ágúst með tvo verðlaunapeninga frá San Marino

Ágúst Júlíusson sundmaður frá Akranesi vann sér bæði inn silfur- og bronsverðlaun á Smáþjóðaleikunum sem fram fóru í San Marino í síðustu viku. Ágúst synti á miðvikudag 100m flugsund og hafnaði í þriðja sæti á tímanum 55.68. Þá synti hann með boðsundssveit karla í 4x100m fjórsundi á fimmtudaginn. Íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og…Lesa meira

true

Stelpugolf í dag á Akranesi

Nú á vormánuðum var Birgir Leifur Hafþórsson ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Birgir Leifur er fæddur og uppalinn Skagamaður og spilaði undir merkjum klúbbsins allt til ársins 1997. Hann þekkir því vel til en þessi reynslumikli kylfingur starfar einnig sem atvinnukylfingur samhliða því að vera íþróttastjóri Leynis. Nú er Birgir Leifur staddur í…Lesa meira

true

Gylfi Þór Sigurðsson landaði fyrsta laxi sumarsins

Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í gærmorgun og þar með laxveiðisumarið. Í fyrrsumar voru stórsöngvarar sem hófu veiðina í Norðurá en nú var komið að knattspyrnuköppum, og þeim ekki af lakara taginu. „Gylfi Þór Sigurðsson var að landa sínum öðrum laxi rétt áðan. Báðir flottar fiskar, en þessi síðari var 92 sentimetra,“ sagði Einar…Lesa meira

true

Sóttu slasaða konu að Glym

Björgunarsveitir Landsbjargar frá Akranesi og úr Borgarfirði voru kallaðar út klukkan rúmlega sex í gær vegna slasaðrar konu við Glym í Hvalfirði. Samferðarmenn konunnar höfðu samband við Neyðarlínuna eftir að konan hafði dottið í urð og lék grunur á að hún væri fótbrotin. Björgunarsveitarfólk bar konuna frá slysstað og í sjúkrabíl á bílastæðinu í Botnsdal.Lesa meira

true

Tvö þyrluflug á Vesturland í gærkvöldi

TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, fór í tvö sjúkraflug í gærkvöldi og nótt. Beiðni um hið fyrra barst á ellefta tímanum í gærkvöldi. Kona hafði fallið af hestbaki við Gilsfjörð. Að læknisráði var þyrlan fengin til að flytja konuna á sjúkrahús. Lent var í fjörunni við Gilsfjörð og voru aðstæður ákjósanlegar, hægur vindur og háskýjað.  Skömmu eftir…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu gegn Keflavík

Í gær hófst fjórða umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu með leik ÍA og Keflavíkur á Akranesvelli. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn með sex stig en búast mátti við hörkuleik þar sem líkur eru á að bæði lið verði í toppbaráttu deildarinnar. Veðuraðstæður voru ekki góðar til knattspyrnuiðkunar á Akranesvelli í gær en…Lesa meira

true

Vígja nýtt veiðihús en opna svo ána

Laxveiðitímabil sumarsins hefst formlega í Norðurá í Borgarfirði í fyrramálið. Áin verður opnuð en fyrst verður nýbygging við veiðihúsið á Rjúpnahæð vígð. Framkvæmdir við nýja svefnálmu hússins hafa staðið yfir frá því laxveiðitímabilinu lauk í fyrrasumar. „Já, þetta hefst formlega á morgun og allir bíða spenntir að hefja veiðina,“ sagði Einar Sigfússon sölustjóri Norðurár í…Lesa meira

true

Dularfulla búðin var opnuð um síðustu helgi

Dularfulla búðin var opnuð með pompi og prakt að Skólabraut 14 á Akranesi síðasta laugardag.  Gestir kynntu sér starfsemina og framtíðaráform, skoðuðu minjagripi, mátuðu sig við grímur og hatta og þáðu kaffisopa í tilefni opnunarinnar. Ingimar Oddsson í Dularfullu búðinni kveðst ánægður með opnunardaginn. „Ég er rosa lukkulegur með opnunina. Mér fannst dagurinn mjög skemmtilegur…Lesa meira

true

Tryggvi Hrafn og Albert í landsliðsverkefni

Í gær kynnti Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs liðs karla í knattspyrnu, hópinn sem mun mæta Englandi í vináttuleik 10. júní næstkomandi. Leikið verður fyrir luktum dyrum á æfingasvæði Englendinga St. Georg‘s Park. Tveir Skagamenn voru valdir í hópinn. Framherjinn Tryggvi Hrafn Haraldsson og miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson. Báðir hafa þeir leikið vel á tímabilinu; Tryggvi…Lesa meira

true

Þrjár sjálfsíkveikjur á innan við ári vegna rafkyntra heitra potta

Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri segir nær fullvíst að eldurinn sem kom upp í sumarbústað í landi Dagverðarness í Skorradal í gærkvöldi hafi komið upp í rafkyntum heitum potti sem staðsettur var á sólpalli við húsið. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp en húsið er gjörónýtt. Bjarni segir að þetta sé í þriðja skipti…Lesa meira