Fréttir

true

Félagsstarf fellur niður á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi

Erfitt hefur reynst að ráða fólk í sumarafleysingar á Dvalarheimilið í Stykkishólmi. Að sögn Kristínar Sigríðar Hannesdóttur forstöðumanns vantar bæði fólk í aðhlynningu, félagsstarf og eldhúsið. „Það hefur ekki gengið nógu vel að manna fyrir sumarið. Staðan er verri en í fyrra en ástæðan er líka að það hafa verið afföll, vegna barneigna og svoleiðis.…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað Skessuhorns í vinnslu

Árlegt Sjómannadagsblað Skessuhorns verður gefið út miðvikudaginn 7. júní næstkomandi. Þar verður að vanda fjallað um ýmislegt sem viðkemur sjómönnum, störfum þeirra og annarra í sjávarútvegi. Eins og undanfarin ár verður þessu tölublaði, auk hefðbundinnar dreifingar til áskrifenda, frídreift á Snæfellsnesi. Auglýsendum er bent á að nýta kjörið tækifæri til að koma sér á framfæri.…Lesa meira

true

Guðrún á Fossi er hundrað ára í dag

Guðrún Ester Magnúsdóttir frá Fossi í Saurbæ er 100 ára í dag. Guðrún hefur undanfarið dvalið á heimili dóttur sinnar í Reykjavík en verður í þessari viku í hvíldarinnlögn á hjúkrunarheimilinu Mörk. Til stendur að halda upp á afmælið með ættingjum og vinum næstkomandi laugardag. Guðrún Ester hefur alla tíð búið í Saurbæ og kveðst…Lesa meira

true

Tekjur af veggjöldum eru 19 milljörðum frá opnun Hvalfjarðarganga

Jón Gunnarsson samgönguráðherra hefur nú svarað nokkrum af þeim fyrirspurnum sem Bjarni Jónsson varaþingmaður VG lagði fyrir hann í vor, þegar hann tók sæti á Alþingi. Fyrirspurnirnar snerust m.a. um Hvalfjarðargöng, þjóðveg um Hvalfjörð og rekstur Spalar. Fram kemur í svörum ráðherra að innheimt veggjöldin frá opnun ganganna 1998 til ársloka 2016 hafi numið 18.454…Lesa meira

true

Skrá minjar búsetu og útræðis við ströndina á Snæfellsnesi

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum heldur í sumar áfram átaksverkefni sem Minjastofnunar stendur fyrir vegna fornleifaskráningar á strandminjum við landið. Að þessu sinni var strandsvæðið frá Ólafsvík að Hellnum í Snæfellsbæ skoðað. Minjar við sjó á utanverðu Snæfellsnesi eru opnar fyrir vetrarstormum og má víða sjá minjar í bráðri hættu, að sögn starfsfólk Rannsóknasetursins. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Minnisvarði um SS Wigry afhjúpaður á sunnudag

Sunnudaginn 28. maí verður afhjúpaður á Syðra-Skógarnesi á sunnanverðu Snæfellsnesi minnisvarði um pólska flutningaskipið SS Wigry. Afhjúpun minnisvarðans verður laust eftir hádegi, eða klukkan 12:30. Hinn 15. janúar árið 1942 sökk pólska fraktskipið SS Wigry ásamt fjölþjóðlegri áhöfn sinni á Faxaflóa, skammt frá Hjörsey, í aftakaveðri sem stundum hefur verið kallað „óveður aldarinnar“. Skipið var…Lesa meira

true

Þrír sóttu um starf skólastjóra

Þrjár umsóknir bárust um starf skólastjóra Reykhólaskóla sem auglýst var laust til umsóknar fyrr í vor. Umsækjendur eru Valgeir Jens Guðmundsson kennari og Jón Einar Haraldsson kennari. Einn umsækjandi vill ekki láta nafns síns getið að svo stöddu, að því er fram kemur á Reykhólavefnum. Skólastjóri verður ráðinn af sveitarstjórn að fenginni umsögn mennta- og…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu á heimavelli

Í gær mættust lið ÍA og nýliðar Grindavíkur á Akranesvelli í Pepsi deild karla. Báðum liðum var spáð slæmu gengi fyrir tímabilið og má því ætla að þau hafi litið á leikinn sem nokkuð mikilvægan. Skagamenn voru fyrir leikinn stigalausir en Grindvíkingar höfðu sigrað einn leik og gert jafntefli. Það voru Grindvíkingar sem stóðu uppi…Lesa meira

true

Lætur öllum illum látum rétt eins og stuðningsmennirnir

Tjaldur er algengur varpfulg á láglendi í öllum landshlutum á Íslandi og sérstaklega í grennd við sjó. Það er þó ólíklegt að það sé á mörgum stöðum sem þeir velja sér stað til hreiðurgerðar og tjaldur einn í Ólafsvík, því hann á hreiður á sjálfum Ólafsvíkurvelli. Þar líður honum alla jafnan vel og sýnir fótboltanum…Lesa meira

true

Fundað um ferðaþjónustu á Akranesi

Akraneskaupstaður býður til hádegisfundar föstudaginn 26. maí næstkomandi frá kl. 12 til 13:30 í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Fundarefnið er ferðaþjónusta á Akranesi. Þar munu fulltrúar Eimskips og Faxaflóahafna mæta og kynna m.a. fyrirhugaðar ferjusiglingar milli Akraness og Reykjavíkur og komu skemmtiferðaskipa til Akraness. Einnig mun Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fara yfir það sem…Lesa meira