Fréttir

true

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Keflavík

Leikið var í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Í Borgarnesi tóku Skallagrímsmenn á móti Keflvíkingum og unnu mikinn baráttusigur eftir spennandi lokafjórðung, 80-71. Skallagrímsmenn náðu heldur yfirhöndinni í leiknum snemma í fyrsta leikhluta en Keflvíkingar fylgdu þeim eins og skugginn og aðeins munaði stigi þegar leikhlutinn var úti. Þeir hófu annan fjórðung af…Lesa meira

true

Árgangamót ÍA er á morgun

Hið árlega Árgangamót ÍA í knattspyrnu verður haldið á morgun. Munu þá margar landsfrægar kempur sem gert hafa garðinn frægan með ÍA í gegnum tíðina reima á sig takkaskóna og sýna hvað í þeim býr. Að venju er hóað saman í lið úr hverjum árgangi og svo leikið til þrautar þar til eitt lið stendur…Lesa meira

true

Kvenfélagið Lilja gaf hjartastuðtæki í Heiðarborg

Kvenfélagið Lilja í Hvalfjarðarsveit fagnar 80 ára afmæli á þessu ári. Félagið hefur í gegnum tíðina styrkt ýmis góð málefni í heimabyggð og á því er engan bilbug að finna. Fyrr í vikunni afhentu kvenfélagskonur sundlauginni í Heiðarborg hjartastuðtæki að gjöf, ásamt blástursmaska og veggskáp. Sigríður Lára Guðmundsdóttir, starfandi skólastjóri í Heiðarskóla, veitti gjöfinni viðtöku…Lesa meira

true

Ungt fólk ræðir um heimahagana og hamingjuna

Svæðisskipulagsnefnd fyrir landssvæði Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar boðar til fundar í Reykjavík með skipulagsráðgjöfum Alta fimmtudaginn 17. nóvember, til að ræða framtíðarþróun svæðisins. Fundurinn ber yfirskriftina „Heimahagarnir og hamingjan“ og er sérstaklega ætlaður ungu fólki frá sveitarfélögunum þremur sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess, en vitanlega eru allir velkomnir, vilji þeir gera…Lesa meira

true

Eldri Borgfirðingar afhentu formlega örnefnaskráningu átta hreppa

Í gær hélt Félag aldraðra í Borgafjarðardölum fagnað í tilefni af 25 ára afmæli félagsins. Fjölmenni mætti í félagsheimilið Brún í Bæjarsveit, en þar hefur félagið haft starfsemi nánast frá upphafi. En ekki var einvörðungu um afmælifagnað að ræða því við sama tilefni afhenti félagið formlega Landmælingum Íslands örnefnaskráningu fyrir allar jarðir á félagssvæðinu. Söfnun og…Lesa meira

true

Því er spáð að hvasst verði við fjöll í fyrramálið

Það mun hvessa á landinu seint í nótt og á morgun og spáð er SA-stormi eða roki um tíma. Reikna má með snörpum hviðum allt að 40 m/s á milli kl. 7 og 11 í fyrramálið við Hafnarfjall og utantil á Kjalarnesi. Nú er hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Vetrarfærð er á flestum fjallvegum…Lesa meira

true

Snæfellsbær kemur til móts við foreldra ungra barna

Snæfellsbær hefur ákveðið að styrkja foreldra barna, sem ekki hafa náð leikskólaaldri og ekki eiga kost á dagforeldrum, með því að greiða sérstakar heimgreiðslur, eða foreldragreiðslur. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember síðastliðinn. Hægt er að sækja um heimgreiðslur þegar fæðingarorlofi lýkur og þangað til barn fær pláss á leikskóla. „Ef óskað er…Lesa meira

true

Gæðadagur á Bifröst

Gæðadagur Háskólans á Bifröst var haldinn í vikunni. Fyrirlestrar um næstu skref í gæðamálum íslenskra háskóla vógu þungt í dagskránni auk umfjöllunar um gæðaverkefni sem Háskólinn á Bifröst beitir sér fyrir um þessar mundir. Ólafur Ísleifsson, gæðastjóri Háskólans á Bifröst, segir daginn mikilvægt nýmæli í gæðastarfi Háskólans á Bifröst. Á gæðadeginum fór Vilhjálmur Egilsson rektor…Lesa meira

true

Landeigendum synjað um að skjóta sólarkísilmáli til EFTA dómstólsins

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp þann úrskurð að hafna beiðni 52 landeigenda í Kjós og við Hvalfjörð um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA dómstólsins, vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um að væntanleg sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á Grundartanga þurfi ekki að fara í umhverfismat. Mbl.is greindi frá. Kæra landeigenda var þingfest 17. desember 2015, efnismeðferð hófst 6.…Lesa meira

true

Snæfell náði fram hefndum

Í gærkvöldi tók Snæfell á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í Borgarnesi í fyrsta leik vetrarins og þá höfðu Skallagrímskonur betur, 73-62. Annað var uppi á teningnum í Stykkishólmi í gær, því Íslandsmeistarar Snæfells náðu fram hefndum og sigruðu með 72 stigum gegn 57. Snæfellskonur byrjuðu mun betur í…Lesa meira