Fréttir

true

Ungt fólk ræðir um heimahagana og hamingjuna

Svæðisskipulagsnefnd fyrir landssvæði Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar boðar til fundar í Reykjavík með skipulagsráðgjöfum Alta fimmtudaginn 17. nóvember, til að ræða framtíðarþróun svæðisins. Fundurinn ber yfirskriftina „Heimahagarnir og hamingjan“ og er sérstaklega ætlaður ungu fólki frá sveitarfélögunum þremur sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni þess, en vitanlega eru allir velkomnir, vilji þeir gera…Lesa meira

true

Eldri Borgfirðingar afhentu formlega örnefnaskráningu átta hreppa

Í gær hélt Félag aldraðra í Borgafjarðardölum fagnað í tilefni af 25 ára afmæli félagsins. Fjölmenni mætti í félagsheimilið Brún í Bæjarsveit, en þar hefur félagið haft starfsemi nánast frá upphafi. En ekki var einvörðungu um afmælifagnað að ræða því við sama tilefni afhenti félagið formlega Landmælingum Íslands örnefnaskráningu fyrir allar jarðir á félagssvæðinu. Söfnun og…Lesa meira

true

Því er spáð að hvasst verði við fjöll í fyrramálið

Það mun hvessa á landinu seint í nótt og á morgun og spáð er SA-stormi eða roki um tíma. Reikna má með snörpum hviðum allt að 40 m/s á milli kl. 7 og 11 í fyrramálið við Hafnarfjall og utantil á Kjalarnesi. Nú er hálka á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Vetrarfærð er á flestum fjallvegum…Lesa meira

true

Snæfellsbær kemur til móts við foreldra ungra barna

Snæfellsbær hefur ákveðið að styrkja foreldra barna, sem ekki hafa náð leikskólaaldri og ekki eiga kost á dagforeldrum, með því að greiða sérstakar heimgreiðslur, eða foreldragreiðslur. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember síðastliðinn. Hægt er að sækja um heimgreiðslur þegar fæðingarorlofi lýkur og þangað til barn fær pláss á leikskóla. „Ef óskað er…Lesa meira

true

Gæðadagur á Bifröst

Gæðadagur Háskólans á Bifröst var haldinn í vikunni. Fyrirlestrar um næstu skref í gæðamálum íslenskra háskóla vógu þungt í dagskránni auk umfjöllunar um gæðaverkefni sem Háskólinn á Bifröst beitir sér fyrir um þessar mundir. Ólafur Ísleifsson, gæðastjóri Háskólans á Bifröst, segir daginn mikilvægt nýmæli í gæðastarfi Háskólans á Bifröst. Á gæðadeginum fór Vilhjálmur Egilsson rektor…Lesa meira

true

Landeigendum synjað um að skjóta sólarkísilmáli til EFTA dómstólsins

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp þann úrskurð að hafna beiðni 52 landeigenda í Kjós og við Hvalfjörð um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA dómstólsins, vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um að væntanleg sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á Grundartanga þurfi ekki að fara í umhverfismat. Mbl.is greindi frá. Kæra landeigenda var þingfest 17. desember 2015, efnismeðferð hófst 6.…Lesa meira

true

Snæfell náði fram hefndum

Í gærkvöldi tók Snæfell á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í Borgarnesi í fyrsta leik vetrarins og þá höfðu Skallagrímskonur betur, 73-62. Annað var uppi á teningnum í Stykkishólmi í gær, því Íslandsmeistarar Snæfells náðu fram hefndum og sigruðu með 72 stigum gegn 57. Snæfellskonur byrjuðu mun betur í…Lesa meira

true

„Eigum að stefna að því að verða númer eitt á landinu“

„Ég hef alltaf verið knattspyrnulega þenkjandi og þegar ég var ung kom aldrei til greina að æfa neina aðra íþrótt en fótbolta,“ segir Hulda Birna Baldursdóttir í samtali við Skessuhorn. Hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA 1. nóvember síðastliðinn af Haraldi Ingólfssyni, sem hafði gegnt starfinu undanfarin þrjú ár. „Ég er Skagamaður, fædd og…Lesa meira

true

Höfðu báðar góða kennara sem vöktu áhuga þeirra á kennslu

Hvorki fleiri né færri en fjórir kennaranemar voru í vettvangsnámi við Grunnskólann í Borgarnesi í síðustu viku. Sætir það nokkrum tíðindum að svo margir kjósi að fara í vettvangsnám í skóla á landsbyggðinni á sama tíma. Skessuhorn var á ferðinni í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag og ræddi við tvo af þeim nemum sem þá voru á…Lesa meira

true

Straumlaust um tíma í nótt

Rafmagnsbilun varð á Akranesi í nótt um klukkan 00:37. Í tilkynningu frá Veitum í nótt, dótturfyritæki Orkuveitu Reykjavíkur, kom fram að áætlað var að viðgerð tæki um tvo tíma. Straumur var þó kominn á hluta húsa nokkuð fyrr.Lesa meira