Fréttir

true

Einyrkjar hittust í kaffi á Breið og hvítlauksbændur komu við

Breið þróunarfélag við Bárugötu á Akranesi bauð í svokallað einyrkjakaffi sem haldið var í hádeginu síðasta föstudag. Markmiðið var að fá einyrkja í atvinnurekstri eða þá sem starfa einir til að koma í kaffispjall og fá smá félagsskap. Hátt í fjörutíu manns mættu og segir á FB síðu Breiðar þróunarfélags að viðburðurinn hafi verið vel…Lesa meira

true

Fundur í Borgarnesi í kvöld um framtíðarsýn í málefnum innflytjenda

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda. Markmiðið er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu. Ráðuneytið býður því til samtals hringinn…Lesa meira

true

Klæddu sig upp

Nýstofnað nemendaráð miðstigs í Grunnskóla Grundarfjarðar skipulagði á dögunum Kynjaskiptidag fyrir nemendur á miðstigi. Þá máttu þær stelpur sem vildu taka þátt klæða sig upp eins og strákar og svo öfugt. Eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni þá voru krakkarnir ansi úrræðagóðir og alls óhræddir við að klæða sig eins og hitt…Lesa meira

true

Óhöpp í umferðinni

Afskipti voru höfð af 20 ökumönnum vegna gruns um of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturland í liðinni viku. Einnig voru hraðabrot 14 ökumanna mynduð með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni innan bæjar á Akranesi með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði á skilti og á ljósastaur. Ökumaðurinn er grunaður um…Lesa meira

true

Garðfuglahelgin er framundan

Árlega fitjar Fuglavernd upp á talningu garðfugla yfir eina helgi. Venjulega er um að ræða síðustu helgina í janúar. Bent er á að gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Að þessu sinni verður Garðfuglahelgin 26.-29. janúar. „Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það…Lesa meira

true

Andlát – Pétur Ágústsson í Stykkishólmi

Látinn er Pétur Ágústsson, skipstjóri og frumkvöðull í Stykkishólmi, 77 ára að aldri. Pétur fæddist í Flatey á Breiðafirði 23. mars 1946. Foreldrar hans, hjónin Ágúst Pétursson og Ingveldur Stefánsdóttir, eignuðust fimm börn og var Pétur í miðjunni. Þau stofnuðu heimili í Flatey en bjuggu lengst af í Stykkishólmi. Árið 1970 kvæntist Pétur eftirlifandi eiginkonu…Lesa meira

true

Styrkur til rannsókna og sameiningar

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur veitt Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Bifröst 250 milljóna króna stofnframlag í nýjan rannsóknasjóð sameinaðs háskóla. Auk þess fá skólarnir 200 milljóna króna styrk til að undirbúa sameiningu skólanna. „Háskólinn á Akureyri (HA) og Háskólinn á Bifröst (HB) sendu á haustdögum 2023 sameiginlega umsókn til ráðuneytisins um fjármagn til…Lesa meira

true

Vara við svikahröppum

Körfuknattleiksdeild Skallagríms setti inn færslu á samfélagsmiðla um helgina þar sem félagið varar við svikahröppum sem segjast vera með beinar útsendingar af leikjum í íslenskum körfubolta. Oft á tíðum eru þessar athugasemdir settar inn á færslur hjá liðum og öðrum tengdum íslenskum körfubolta án nokkurrar innistæðu, þar sem ekki er í raun um að ræða…Lesa meira

true

FVA úr leik í Gettu betur eftir naumt tap

Sextán liða úrslitum spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, lauk síðasta föstudag í Ríkisútvarpinu með fjórum viðureignum. Aðeins einn skóli utan höfuðborgarsvæðisins komst í átta liða úrslit. Lið Menntaskólans á Ísafirði varð fyrst til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í viðureignum kvöldsins. Ísfirðingar sigruðu lið Framhaldsskólans á Laugum með 18 stigum gegn sjö.…Lesa meira

true

Fundur hjá öldungaráði Grundarfjarðarbæjar

Síðasta föstudag hélt öldungaráð Grundarfjarðarbæjar fund í Ráðhúsi bæjarins. Ráðið starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og fjallar um þjónustu við aldraða og framkvæmd og þróun öldrunarmála. Í ráðinu sitja sjö fulltrúar, þrír skipaðir af bæjarstjórn, þrír af Félagi eldri borgara og einn af heilsugæslunni. Fjölmargt var rætt og inn…Lesa meira