Skipstjórinn í brúnni. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Andlát – Pétur Ágústsson í Stykkishólmi

Látinn er Pétur Ágústsson, skipstjóri og frumkvöðull í Stykkishólmi, 77 ára að aldri. Pétur fæddist í Flatey á Breiðafirði 23. mars 1946. Foreldrar hans, hjónin Ágúst Pétursson og Ingveldur Stefánsdóttir, eignuðust fimm börn og var Pétur í miðjunni. Þau stofnuðu heimili í Flatey en bjuggu lengst af í Stykkishólmi. Árið 1970 kvæntist Pétur eftirlifandi eiginkonu sinni; Svanborgu Siggeirsdóttur frá Baugsstöðum í Flóa. Börn þeirra eru fjögur. Þau hjón hafa alla sína búskapartíð búið í Stykkishólmi og sett mark sitt svo um munar á atvinnulífið þar.

Pétur Ágústsson byrjaði að sækja sjó á barnsaldri og lauk farmannaprófi 1967. Þegar hann var 19 ára hóf hann sinn skipstjórnarferil og var í því starfi nánast óslitið til vorsins 2016 eða í rúm 50 ár og var alls í rúm 60 ár á sjó. Þau hjón; Pétur og Svanborg, voru meðal stofnenda útgerðarfélagsins Hólms hf. 1972 og gerðu út Sif SH-3, 120 tonna stálbát.  Bátinn gerðu þau út í ein 18 ár, en seldu hann 1990. Þá var Pétur einn af frumkvöðlunum við skelveiðarnar sem voru um tíma mikill útvegur í Stykkishólmi; var uppfinningamaður, tók m.a. þátt í þróun skelplóganna og vélvæddi hreinsun á skelinni um borð í bátnum.

Pétur var lengi á fiskibátum en árið 1986 stofnuðu þau hjónin, ásamt Eyþóri bróður Péturs, Eyjaferðir í Stykkishólmi og hófu útgerð skemmtibáta; fyrst Brimrúnu og síðar Hafrúnu. Félagið breyttist síðar í Sæferðir ehf. og gerir út stóra farþegabáta og einnig ferjuna Baldur frá 2001 nú síðustu árin í verktöku fyrir Vegagerðina. Þau Svanborg seldu sinn hlut í Sæferðum árið 2015. Þá má geta þess að þau hjón keyptu og gerðu upp Egilsen húsið í Stykkishólmi. Það reyndist kostnaðarsamt verkefni og var húsið að endingu selt, en því var vissulega bjargað og er í dag ein af perlum í bæjarmyndinni í Stykkishólmi. Einnig voru þau með hótelrekstur um tíma.

Pétur Ágústsson sat m.a. í bæjarstjórn Stykkishólms í átta ár auk þess að gegna ýmsum öðrum félagsstörfum. Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 2009 fyrir frumkvæði í ferðaþjónustu. Þá fékk hann heiðursorðu sjómannadagsins og þau hjónin; Pétur og Svanborg, fengu heiðursviðurkenninguna Höfðingjann fyrir framlag sitt til uppbyggingar ferðaþjónustu á Vesturlandi.

Pétur Ágústsson á að baki langa og farsæla starfsævi. Hann og Svanborg tókust samhent og órög á við fjölmörg verkefni í heimabæ sínum. Þau ruddu brautina eins og sannir frumkvöðlar gera, frumkvöðlar sem eru nauðsynlegir í öllum samfélögum sem vilja eflast og dafna.

Útför verður gerð frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 10. febrúar nk. kl. 14.

Andlát - Pétur Ágústsson í Stykkishólmi - Skessuhorn