Fréttir

true

Dalabyggð styður við félagsstarf eldri borgara

Fyrr í vikunni var undirritaður samstarfssamningur milli Dalabyggðar og Félags eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi (FEBDOR). „Markmið samningsins er meðal annars að efla starf félags eldri borgara og stuðla að auknu samstarfi milli félagsins og Dalabyggðar,“ segir í frétt á vef Dalabyggðar. „Með samningnum fær félagið starfsstyrk að upphæð 400.000 krónur ásamt óbeinum styrkjum.…Lesa meira

true

Framlengja samning um tjaldsvæði

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 30. nóvember síðastliðinn kom fram beiðni um framlengingu samnings um rekstur á tjaldsvæðinu í Kalmansvík. Skipulags- og umhverfisráð hafði lagt til við bæjarráð að framlengja samning um rekstur tjaldsvæðisins við Landamerki ehf. til 30. apríl 2025. Bæjarráð samþykkti á fundinum að gengið yrði til samninga við núverandi rekstraraðila um framlengingu reksturs…Lesa meira

true

Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar voru með upplestur í Brún

Undanfarin ár hefur Félag eldri borgara í Borgarfjarðardölum boðið nemendum úr Grunnskóla Borgarfjarðar að koma og hafa upplestur fyrir gesti. Yfirleitt hefur upplesturinn verið í kringum dag íslenskrar tungu en að þessu sinni var farið miðvikudaginn 29. nóvember og var hann haldinn í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja deilda grunnskóli sem staðsettur…Lesa meira

true

Aðventan gengin í garð – Myndasyrpa

Fyrsti sunnudagur í aðventu var á sunnudaginn. Hvarvetna í þéttbýli og víðar var kveikt á ljósum jólatrjánna fyrir eða um síðustu helgi og prýða þau nú stræti og torg fram á nýja árið. Fréttaritarar og blaðamenn Skessuhorns auk annarra voru á ferðinni og fönguðu stemninguna.Lesa meira

true

Sýslumaðurinn á Blönduósi tekur yfir verkefni Innnheimtustofnunar sveitarfélaga

Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga verða færð til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Það sýslumannsembætti þótti dómsmálaráðherra vænlegur valkostur fyrir móttöku verkefnisins vegna samlegðar við önnur sérverkefni þess, svo sem innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi sem er á ábyrgð embættisins. Dómsmálaráðuneytið og innviðaráðuneytið hafa unnið að þessum breytingum í sameiningu þar sem það fellur vel að byggðaáætlun og sameiginlegum markmiðum…Lesa meira

true

Árlegt kótelettukvöld Club71 – grindvísk stúlka styrkt

Um síðustu helgi hélt pilta-hluti Club71 árlegt jólakótelettukvöld sem fram fór að þessu sinni í iðnaðarhúsnæði HH Verktaks. Club71 er félagsskapur úr árgangi fólks fæddum 1971 á Akranesi. Markmiðið er að sameina það að gleðjast og láta gott af sér leiða í leiðinni. „Kvöldið tókst ljómandi vel þó með árunum séu félagar farnir að sofa…Lesa meira

true

Sýna barnasöngleik í kvöld og á morgun

Nemendur Söngleikjadeildar Tónlistarskóla Borgarfjarðar hafa undanfarið verið að æfa barnasöngleikinn Litla stúlkan með eldspýturnar eftir sögu H.C. Andersen. Sýningar verða nú í vikunni og að þessu sinni verða þær í Borgarneskirkju. Tónlistin er eftir Magnús Pétursson og auk þess verða nokkur þekkt jólalög sungin í verkinu. Á haustönninni hafa 19 nemendur stundað nám í söngleikjadeild…Lesa meira

true

Aðventugluggar í Grundarfirði fram að jólum

Undanfarin þrjú ár hefur Grundarfjarðarbær verið með jólaglugga á hverjum degi í desember fram til jóla þar sem á morgnana birtist gluggi dagsins á samfélagsmiðlum bæjarins og var oft kapp í fólki að giska hvar glugginn væri. Þetta framtak hófst þegar samkomutakmarkanir voru í gildi en í ár verður breyting á og er bærinn með…Lesa meira

true

Ók á tvöföldum hámarkshraða

Afskipti voru höfð af 15 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í liðinni viku í umdæmi Logreglunnar á Vesturlandi. Einn ökumaður var tekinn innanbæjar í Borgarnesi á 65 km hraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst, eða á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Afskipti voru einnig höfð af tveimur ökumönnum sem reyndust sviptir ökuréttindum. Tvö umferðaróhöpp komu inn…Lesa meira

true

Rannsóknarverkefni Gauta um gláku hlýtur risastyrk

Gauti Jóhannesson augnlæknir frá Efri-Hrepp í Skorradal starfar sem dósent og yfirlæknir við klíníska vísindadeild Háskólans í Umeå í Svíþjóð. Nýverið var tilkynnt að verkefni sem hann er í forsvari fyrir fengi um 20 milljóna sænskra krónu styrk sem greiddur verður út á næstu fjórum árum. Upphæðin nemur tæpum 270 milljónum íslenskra króna. Rannsóknaverkefnið nefnist;…Lesa meira