Árlegt kótelettukvöld Club71 – grindvísk stúlka styrkt

Um síðustu helgi hélt pilta-hluti Club71 árlegt jólakótelettukvöld sem fram fór að þessu sinni í iðnaðarhúsnæði HH Verktaks. Club71 er félagsskapur úr árgangi fólks fæddum 1971 á Akranesi. Markmiðið er að sameina það að gleðjast og láta gott af sér leiða í leiðinni. „Kvöldið tókst ljómandi vel þó með árunum séu félagar farnir að sofa töluvert fyrr en gert var á árum áður,“ segir Pétur Magnússon félagi í hópnum.

Árlegt kótelettukvöld Club71 - grindvísk stúlka styrkt - Skessuhorn