
Laugardaginn 2. desember voru duglegir Lionsmenn á ferðinni með jólatré Grundarfjarðarbæjar. Það var sett upp í miðbænum á sínum vanalega stað en tréð í ár er fengið úr nágrenninu. Á sunnudeginum var svo kveikt á ljósunum undir ljúfum jólatónum í blíðskaparveðri. Hurðaskellir og Stekkjastaur tóku forskot á sæluna og mættu á svæðið og dönsuðu nokkra hringi í kringum tréð og gáfu börnunum gómsætar mandarínur. Ljósm. tfk
Aðventan gengin í garð – Myndasyrpa
Fyrsti sunnudagur í aðventu var á sunnudaginn. Hvarvetna í þéttbýli og víðar var kveikt á ljósum jólatrjánna fyrir eða um síðustu helgi og prýða þau nú stræti og torg fram á nýja árið. Fréttaritarar og blaðamenn Skessuhorns auk annarra voru á ferðinni og fönguðu stemninguna.