
Meirihluti hreppsnefndar Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 18. október síðastliðinn að óska eftir óformlegum viðræðum við Borgarbyggð um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Þrír af fimm sveitarstjórnarfulltrúum samþykktu að; „fela oddvita og varaoddvita að óska eftir samtali við sveitarstjórn Borgarbyggðar um mögulega útfærslu á sameiningarmöguleikum.“ Tveir fulltrúar í sveitarstjórn greiddu ekki atkvæði sín með tillögunni. Pétur Davíðsson…Lesa meira








