Fréttir

true

Áttu góðu gengi að fagna á Íslandsmóti para í keilu

Skagafólki í keilunni gekk vel á Íslandsmóti para sem fram fór um helgina. Íslandsmeistarar urðu Ísak Birkir Sævarsson ÍA og Katrín Fjóla Bragadóttir KFR og í öðru sæti urðu Steinunn Inga Guðmundsdóttir og Magnús Sigurjón Guðmundsson ÍA. Ísak og Katrín settu nokkur Íslandsmet. Í einum leik 526 stig og 1.410 í þremur leikjum. Auk þess…Lesa meira

true

Lögðu fram tvær bókanir um umhverfisslys í sjókvíaeldi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var umræða um það umhverfisslys að fjöldi frjórra eldislaxa hefur sloppið úr sjókví í Patreksfirði og leitar nú upp í laxveiðiár m.a. í Borgarbyggð. Tvær bókanir um málið voru lagðar fram og ganga þær mjög misjafnlega langt. Bókun meirihlutans Davíð Sigurðsson sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokks lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar, Við töpum öll á einsleitninni – Jafnrétti er ákvörðun, var haldin síðastliðinn fimmtudag. Þar kynnti frú Elíza Reid forsetafrú viðurkenningarhafa. Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu var Akraneskaupstaður ásamt 10 öðrum sveitarfélögum, 22 stofnunum og 56 fyrirtækjum. Þetta er annað árið í röð sem Akraneskaupstaður hlýtur þessa viðurkenningu. Frá þessu er greint á upplýsingasíðu…Lesa meira

true

Höfðu stólaskipti í ríkisstjórn

Í gær bauð forystufólk í ríkisstjórninni til blaðamannafundar í Eddu, húsi íslenskra fræða. Eftir afsögn Bjarna Benediktssonar úr starfi fjármálaráðherra var ljóst að breytinga væri að vænta á ríkisstjórinni. Þær breytingar urðu hins vegar eins litlar og mögulegt var í stöðunni. Bjarni Benediktsson verður nú utanríkisráðherra og hefur sætaskipti við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem…Lesa meira

true

SFS boðar til fundar í Ólafsvík

„Hvað hefur sjávarútvegurinn gert fyrir þig?“ er yfirskrift funda sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi boða til um þessar mundir og haldnir verða á nokkrum stöðum á landinu. Einn slíkur fundur fer fram á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík þriðjudaginn 17. október klukkan 16:30. Um fundinn segir: „Það varðar okkur öll hvernig sjávarauðlindin er nýtt og hvernig…Lesa meira

true

Varað við frostrigningu í fyrramálið með hálku

Spáð er norðan 10-18 m/s og éljum, en yfirleitt þurrt hér sunnan heiða. Lægir smám saman á vestanverðu landinu síðdegis í dag og hiti um eða yfir frostmark að deginum. Það verður svo vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/sek og él í fyrramálið, en hlýnar síðan með stöku skúrum eða slydduéljum. Hiti 0 til 7…Lesa meira

true

Lyfjastofnun skoðar að leyfa SMA lyfið Spinraza fyrir fullorðna

Fréttavefur ruv.is greinir frá því að Lyfjastofnun hefur til skoðunar að leyfa lyfið Spinraza fyrir fullorðna. Lyfið er notað til meðhöndlunar á SMA-sjúkdómnum, sem er taugahrörnunarsjúkdómur og hefur lyfið hér á landi einungis verið leyft fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára. Þetta kom fram í svari Lyfjastofnunar við fyrirspurn fréttastofu RUV. Ellefu manns…Lesa meira

true

Borgarverk átti langlægsta boð í næsta áfanga Vestfjarðavegar

Hjá Vegagerðinni voru í gær opnuð tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, leiðina frá Hallsteinsnesi til Skálaness, þ.e. vegfylling yfir Gufufjörð og Djúpafjörð. Smíði þriggja varanlegra brúa yfir firðina verður boðin út síðar. Um er að ræða nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 3,6 km kafla. Innifalið í verkinu er bygging um 119 m langrar bráðabirgðabrúar…Lesa meira

true

Breyta reglugerð um framleiðslu og markaðssetningu smáframleiðenda

Matvælaráðuneytið hefur, að höfðu samráði við Samtök smáframleiðenda matvæla og félag heimavinnsluaðila – Beint frá býli, lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á reglugerð um framleiðslu og markaðssetningu smáframleiðenda. Ákveðið ósamræmi hefur verið til staðar á milli heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga hvað varðar túlkun reglugerðarinnar vegna leyfisveitinga á matarmörkuðum. Gat þessi munur haft kostnaðarauka í…Lesa meira