Varað við frostrigningu í fyrramálið með hálku

Spáð er norðan 10-18 m/s og éljum, en yfirleitt þurrt hér sunnan heiða. Lægir smám saman á vestanverðu landinu síðdegis í dag og hiti um eða yfir frostmark að deginum. Það verður svo vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/sek og él í fyrramálið, en hlýnar síðan með stöku skúrum eða slydduéljum. Hiti 0 til 7 stig eftir hádegi. Þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi og vægt frost.

Vegagerðin bendir á að það verður kalt í nótt, en með mildara lofti sem kemur rólega úr vestri inn yfir suðvestanvert landið, skapast aðstæður fyrir staðbundna frostrigningu á milli kl. 7 og 11 á morgun. Hætt er við fljúgandi hálku, einkum í Borgarfirði, Hvalfirði og í uppsveitum Suðurlands.