
Borgarverk var fyrr í sumar að leggja klæðningu á nýja veginn um Teigsskóg. Ljósm. Vegagerðin.
Borgarverk átti langlægsta boð í næsta áfanga Vestfjarðavegar
Hjá Vegagerðinni voru í gær opnuð tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit, leiðina frá Hallsteinsnesi til Skálaness, þ.e. vegfylling yfir Gufufjörð og Djúpafjörð. Smíði þriggja varanlegra brúa yfir firðina verður boðin út síðar. Um er að ræða nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 3,6 km kafla. Innifalið í verkinu er bygging um 119 m langrar bráðabirgðabrúar á Gufufjörð. Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2025.