
Um klukkan 13 í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað að bænum Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit. Talsverður eldur logaði þá í suðurenda vélaskemmu á bænum. Engan sakaði í brunanum og önnur hús voru ekki í hættu. Slökkvistarf gekk vel og nú laust fyrir klukkan 14 var slökkviliðið búið að ná tökum á eldinum, að sögn…Lesa meira








