
Kind nr. 21-160 frá Geirshlíð sem er ein af nýju ARR kindunum sem greindar hafa verið. Ljósm. rml.is
Bæjum fjölgar sem ARR genin greinast
Á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, rml.is, er greint frá því að undanfarið hafa staðið yfir greiningar á sýnum úr kindum úr Dölunum. „Það er annars vegar restin af hjörðinni í Vífilsdal og hins vegar frá fimm bæjum sem eiga kindur sem skyldar eru þeim kindum sem fundust með ARR í Vífilsdal. Hluti af niðurstöðunum eru nú komnar og þar með orðið ljóst að tveir nýir bæir bætast í hóp „ARR búa,“ en ARR hefur verið staðfest í tveimur kindum á Háafelli í Miðdölum og í þremur kindum í Geirshlíð í Hörðudal,“ segir í frétt RML.