
Eldur í vélaskemmu á Kjaransstöðum
Um klukkan 13 í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað að bænum Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit. Talsverður eldur logaði þá í suðurenda vélaskemmu á bænum. Engan sakaði í brunanum og önnur hús voru ekki í hættu. Slökkvistarf gekk vel og nú laust fyrir klukkan 14 var slökkviliðið búið að ná tökum á eldinum, að sögn Sigurðar Þórs Elíssonar varðstjóra hjá slökkviliðinu, sem stýrði aðgerðum á vettvangi. Ljóst er að töluvert tjón varð í brunanum en í skemmunni voru vélar og tæki, auk gaskúta. Eldsupptök eru ókunn.